Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Lyle farinn heim að æfa sig
Þriðjudagur 5. apríl 2016 kl. 15:31

Lyle farinn heim að æfa sig

Jarrod Lyle hefur átt í vandræðum með að finna sveifluna eftir endurkomuna á PGA mótaröðina eftir gríðarlega erfiða baráttu við hvítblæði. Lyle hefur getað leikið á læknaundanþágu en honum hefur gengið skelfilega og ekki komist í gegnum niðurskurðinn nema einu sinni í seinustu sjö tilraunum.

„Ég var bjartsýnn á gott gengi en þetta hefur gengið erfiðlega“ sagði Lyle sem hefur ákveðið að snúa heim til Ástralíu til að æfa sig. „Ég er ekki að gefast upp. Ég elska ennþá leikinn og veit að þetta er það eina sem ég vill gera. Ég veit ekki hvernig líf mitt væri án golfsins.“

Lyle á ekki nema þrjú mót eftir af læknaundanþágu sinni og þarf að þéna rúmlega 30 milljónir íslenskra króna í þeim mótum til þess að halda kortinu sínu. „Það er ekkert leyndarmál að ég hef ekki þénað neitt af viti. Ég verð að finna eitthvað og vonandi er frí heima það sem ég þarf á að halda.“