Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Þriðjudagur 14. júlí 2009 kl. 09:16

Lyle kallar Monty svindlara

Sandy Lyle sparaði ekki stóru orðin þegar hann pundaði duglega á landa sinn Colin Montgomerie í aðdraganda Opna breska meistaramótsins á Turnberry. Lyle er greinilega enn reiður út í Monty fyrir að hafa haft af honum fyrirliðastöðuna fyrir Ryder-bikarinn á næsta ári.

Lyle var gagnrýndur fyrir að draga sig úr keppni á Open í fyrra, en hann hætti eftir níu holur í roki og rigningu vegna sárinda í höndum. Hann sagði að Montgomerie hefði unnið sér meira til skammar þegar hann gerði sig sekan um „eins kona svindl“ á móti í Indónesíu árið 2004.

Eftir hlé vegna rigningar lét Monty boltann detta á mun þægilegri stað en áður og uppskar mikla gagnrýni fyrir það. Dómarar hreinsuðu hann af ásökunum um svindl, en hann gaf verðlaunaféð sem hann fékk á mótinu, alls 24.000 pund, til góðgerðarmála. Hann sagði að um óviljandi mistök hafi verið að ræða.

„Það kalla ég verra en að draga sig út vegna eymsla í hnúum“, sagði hinn 51 árs Lyle. „Monty lét boltann detta á betri stað. Það er eins konar svindl. [...] Það hafa líka verið fleiri dæmi um að hann hafi verið kallaður fyrir til að skoða myndbönd [af vafaatriðum á vellinum].“

Monty svo að segja stal Ryder-fyrirliðastöðunni undan nefinu á Lyle, sem var líklegastur til að hreppa hnossið áður en Monty lýsti yfir áhuga sínum á stöðunni. Einn af rökstuðningunum fyrir því að Monty væri betur til starfans fallinn var sá að hann, sem yngri leikmaður sem enn keppti á fullu á mótaröðinni, væri í betra sambandi við helstu leikmenn. Lyle blæs á þær röksemdir.

„Þú sérð hann aldrei!,“ sagði Lyle. „Hann hverfur og er ekki mikið á staðnum. Hann er fáskiptinn og þessi aldursumræða er ekkert nema kjaftæði. Á síðasta Ryder-bikar var Paul Azinger með tvo vara-fyrirliða, Raymond Floyd og Dave Stockton, sem eru báðir nálægt sjötugu. Þeim kom vel saman við leikmennina því að leikmennirnir báru virðingu fyrir þeim.“

Monty sjálfur hefur sjaldan látið undir höfuð leggjast að segja sína meiningu og má fastlega búast við svari frá honum síðar í dag.

Mynd/PA: Lyle og Monty á meðan allt lék í lyndi. Ryder-bikarinn í húsi árið 2006