Lyle og Alliss í Frægðarhöllina

Sandy Lyle og Peter Alliss hafa verið teknir í Frægðarhöll golfsins en Evrópumótaröðin tilkynnti þetta í dag. Skotinn Lyle hefur bæði unnið Masters mótið og Opna breska á ferli sínum. Alliss þekkja margir sem „Rödd golfsins“ en hann hefur lýst stórmótunum á BBC um árabil.
„Ég er ekki einungis himinlifandi heldur einnig spenntur með að hljóta þennan heiður. Ég vil þakka öllum sem kusu mig. Að fá nafn mitt í hóp margra af bestu kylfingum sögunnar er frábært,“ sagði Lyle.
Þessi 53ja ára Skoti hefur unnið 29 atvinnumannamót á ferlinum, þar af 16 á Evrópumótaröðinni og þrjú mót á PGA-mótaröðinni. Alliss hóf ferilinn hjá BBC árið 1961 og hefur lýst nær flestum stórmótum sem hafa verið sýnd hjá breska útvarpinu síðan. Það er hreinlega órjúfanleg hefð hjá mörgum að hafa djúpa rödd Alliss undir þegar þeir fylgjast með stærstu mótum ársins.
„Þetta kemur mér mjög á óvart. Ég er himinlifandi, hrærður og stoltur að það sé hugað til mín með þessum hætti,“ sagði hinn áttræði Alliss við tilefnið. Þeir verða formlega teknir inn í frægðarhöllina í maí á næsta ári.


