Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Lyle snýr aftur eftir hvítblæði
Fimmtudagur 15. ágúst 2013 kl. 09:29

Lyle snýr aftur eftir hvítblæði

Jarrod Lyle mun snúa aftur á keppnisvöllinn eftir erfið veikindi á Australian Masters mótinu í nóvember. Lyle..

Jarrod Lyle mun snúa aftur á keppnisvöllinn eftir erfið veikindi á Australian Masters mótinu í nóvember. Lyle greindist með hvítblæði í annað sinn á ævi sinni í mars á síðasta ári og hefur þurft að gangast undir lyfjameðferð til að vinna bug á veikindum sínum.

Lyle fékk þau tíðindi í júní að hann hefði haft betur og að líkami hans væri laus við sjúkdóminn. Hann hefur verið í endurhæfingu síðustu vikur og mánuði en er nú óðum að ná fyrri styrk.

Lyle stefnir að því að hefja keppni á PGA-mótaröðinni á nýjan leik á næsta ári. Fyrst ætlar hann þó að reyna fyrir sér í Ástralíu og leikur m.a. gegn þeim Adam Scott og Matt Kuchar sem einnig taka þátt í þessu sterka móti. Leikið verður á Royal Melbourne vellinum sem er einn besti völlur Ástralíu.