Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fimmtudagur 6. ágúst 2009 kl. 10:19

Monty kemur Lyle til varnar

Skoski meistarakylfingurinn Sandy Lyle lenti sannarlega í bobba á dögunum þegar hann fór að rifja upp leiðindaatvik á ferli landa síns Colins Montgomeries. Monty uppskar mikla gagnrýni eftir umdeilt atvik sem átti sér stað á móti í Indónesíu fyrir nokkrum árum þar sem hann lét bolta detta á mun hagstæðari stað en hann hafði verið áður en leikur var stöðvaður vegna veðurs.

Þó dómnefnd mótsins hafi ákveðið að refsa Monty ekki fyrir uppátækið varð það gagnrýnisröddunum lítil þægð jafnvel þó hann léti sjálfur verðlaunaféð sem hann fékk fyrir fjórða sætið í mótinu renna til góðgerðarmála.

Deilan var að mestu gleymd þegar Lyle rifjaði atvikið upp með eftirminnilegum hætti í aðdraganda Opna breska meistaramótdsins og sagði það hafa verið „eins konar svindl“. Allt fór á hvolf og Monty fannst illa að sér vegið. Hann kenndi fjaðrafokinu m.a. um það hve honum gekk illa á Opna breska og var útlit fyrir að seint myndi gróa um heilt milli þeirra.

Á þeim tíma gagnrýndu forsvarsmenn Evrópumótarðaðarinnar Lyle harðlega þar sem ummælin þóttu ekki gefa góða mynd af kylfingunum, mótaröðinni eða íþróttinni. Honum var þó engin refsing gerð og var útlit fyrir að þar yrði málinu lokið.

Svo vildi það til í upphafi þessarar viku að einn æðsti maður mótaraðarinnar hafi samband við umboðsfyrirtæki Lyles og sagði að hann ætti von á harðri refsingu.

Þá gerist það í gær að Montgomerie grípur inn í atburðarásina og biður Lyle vægðar, enda sé það vart sæmilegt að refsa einum fremsta kylfingi í sögu mótaraðarinnar og tvöföldum sigurvegara á risamótum, með slíkum hætti.

Nýjustu fregnir herma að nú hafi verið ákveðið að ef Lyle verður refsað á annað borð, yrði það aðeins til málamynda þannig að það er spurning hvort að þessir merku afreksmenn hafi grafið stríðsöxina og geti í framhaldinu lappað upp á vinskapinn.