Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Miðvikudagur 15. júlí 2009 kl. 10:50

Monty ósáttur við Sandy Lyle

Colin Mongomerie fannst lítið koma til afsökunarbeiðni landa síns Sandy Lyles, sem rifjaði upp umdeilt atvik frá árinu 2005 þar sem Monty lét boltann detta á hagkvæmari stað í glompu eftir leikhlé vegna rigningar. Sagði Lyle að þetta hafi verið „eins konar svindl“.

Monty er að búa sig undir að keppa á Opna breska meistaramótinu í tuttugasta sinn og hefði sannarlega getað verið án þessarar truflunar. Þrátt fyrir að Lyle hafi dregið nokkuð í land með ummæli sín og sagði að þau hefðu verið tekin úr samhengi, neitaði hann að draga til baka að um „eins konar svindl“ hafi verið að ræða hjá Monty á sínum tíma.

Monty sagði í samtali við fjölmiðla að hann hafi ekki átt neinn hluta í þessari uppákomu. „Þetta er bara eitthvað hjá Sandy. Þetta var íka svolítið skrítin afsökunarbeiðni hjá honum. Ég er bara að reyna að keppa á Opna breska mótinu og þetta hefur aðeins truflað undirbúninginn hjá mér. Og ég er aldeilis ekki ánægður með það!“