Nesklúbburinn opnar nýja íþróttamiðstöð
Síðastliðinn laugardag opnaði Nesklúbburinn nýja íþróttamiðstöð á Seltjarnarnesi.
Þar er glæsileg 130 fermetra púttflöt ásamt 6 Trackman golfhermum af fullkomnustu gerð. Einnig er þar aðstaða til líkamsrætkar fyrir þá sem æfa skipulega á vegum klúbbsins.
Golfíþróttin hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár á Nesinu og æfa í dag hátt í 100 börn hjá klúbbnum allt árið auk þess sem 800 meðlimir eru í Nesklúbbnum og annar eins fjöldi á biðlista. Æfingamiðstöðin mun gjörbreyta starfi klúbbsins yfir vetrartímann og mun bætt aðstaða auka aðgengi kylfinga á öllum aldri að inni æfingaaðstöðu í hæsta gæðaflokki auk þess sem barnastarfið getur haldið áfram að vaxa með tilkomu bættrar aðstöðu. Nesklúbburinn hefur undanfarin ár haft aðsetur á Eiðistorgi í Risinu og var sú aðstaða sprungin sökum mikils áhuga og mun nýja aðstaðan hjálpa mikið við að anna eftirspurn kylfinga á Nesinu að golfi allt árið um kring.





