Nýr dræver frá MacGregor

Það hefur lítið farið fyrir kylfufyrirtækinu MacGregor á undanförnum árum en kylfur frá fyrirtækinu voru eitt sinn gríðarlega vinsælar. Jack Nicklaus og Greg Norman léku með kylfur frá fyrirtækinu á hátindi síns ferils en síðustu ár hefur gengi fyrirtækisins dalað allhressilega.
Nú er kominn á markað nýr dræver frá fyrirtækinu. Hann hefur hlotið nafnið M59 og er hann með 460cc haus. Kylfan er hönnuð með það að leiðarljósi að auka boltahraðann.
MacGregor var eitt sinn þekktasta merkið í golfheiminum en fellur í dag inn í flóru golfvöruframleiðenda. 58 sinnum hafa kylfingar unnið risatitla með MacGregor kylfur í höndunum en auk Nicklaus og Norman þá lék Ben Hogan einnig lengi með kylfur frá þessi þekkta fyrirtæki. MacGregor er 113 ára gamalt fyrirtæki frá Ohio í Bandaríkjunum og hver veit nema að fyrirtækið sé að sækja í sig veðrið eftir lægð undanfarin ár.


