Ólafía Þórunn tíundi kylfingurinn í hópi 10 efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er í hópi 10 efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2016. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu og verður því lýst á morgun, þann 29. desember. Þetta er í 61. sinn sem kjörið fer fram.
Ólafía er tíundi kylfingurinn sem er á topp 10 listanum í þessu kjöri frá upphafi og þriðja konan.
Enn hefur enginn kylfingur verið kjörinn íþróttamaður ársins en Ólafía Þórunn er talin líkleg í kjörinu í ár. Hingað til náði Úlfar Jónsson bestum árangri kylfinga en hann endaði annar árið 1987. Sigurður Pétursson endaði í 3. sæti árið 1985 og er það næst besti árangur kylfings.
Eftirtaldir eru á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2016:
Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir
Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna
Aron Pálmarsson, handbolti
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund
Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar
Martin Hermannsson, körfubolti
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna
Eftirtaldir kylfingar hafa verið á topp 10 listanum í kjörinu á Íþróttamanni ársins:
1963: Magnús Guðmundsson 10.
1965: Magnús Guðmundsson 7.
1977: Björgvin Þorsteinsson 9.
1979: Hannes Eyvindsson 8.
1981: Ragnar Ólafsson 6.
1984: Ragnar Ólafsson 9.
1985: Sigurður Pétursson 3.
1986: Úlfar Jónsson 9.
1987: Úlfar Jónsson 2.-10.
1988: Úlfar Jónsson 5.
1990: Úlfar Jónsson 4.
1992: Úlfar Jónsson 5.
1993: Úlfar Jónsson 5. Þorsteinn Hallgrímsson 8.
1996: Birgir Leifur Hafþórsson 5.
1997: Birgir Leifur Hafþórsson 6.
1998: Ragnhildur Sigurðardóttir 9.
2000: Birgir Leifur Hafþórsson 5.
2001: Birgir Leifur Hafþórsson 6.
2002: Ólöf María Jónsdóttir 9.
2003: Ragnhildur Sigurðardóttir 9.
2004: Ólöf María Jónsdóttir 4., Birgir Leifur Hafþórsson 5.
2005. Ólöf María Jónsdóttir 8.
2006: Birgir Leifur Hafþórsson 4.
2007: Birgir Leifur Hafþórsson 5.
2011: Ólafur Björn Loftsson 10.