Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Föstudagur 29. maí 2009 kl. 12:40

Opna evrópska: Hansen fatast flugið

Daninn Anders Hansen náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring á Opna evrópska mótinu í London í dag. Eftir að hafa leikið á 65 höggum í gær, eða sjö undir pari, náði hann sér ekki á strik og var á einu höggi yfir pari í dag. Hansen er sem stendur í 6. til 8. sæti, en fjölmargir kylfingar eiga eftir að ljúka leik og gæti hann færst enn neðar áður en yfir lýkur í dag.

Á toppnum situr nú Frakkinn Michael Lorenzo-Vera, en hann er alls á átta höggum undir pari eftir að hafa lokið leik á 3 undir í dag. Í öðru sæti eru Anthoy Wall, Jamie Donaldson Thoma Aiken og Peter Hanson, allir á sjö undir pari, en af þeim hefur einungis Wall lokið leik í dag. Aiken og Hanson eru nú á 5 . holu og gætu komist í góða stöðu ef þeir halda rétt á kylfunum.

Lee Westwood, sem tvisvar hefur sigrað á þessu móti, lék á 3 höggum yfir pari í dag og er samtals á einu höggi yfir pari. Fleiri stórkylfingar eru í vandræðum á þessu móti, en Retief Goosen, Angel Cabrera, Henrik Stenson og Robert Rock eru allir langt frá sínu besta og verða flestir komnir í helgarfrí í lok dags ef að líkum lætur.

Staðan

Mynd/golfsupport.nl: Hansen náði sér ekki á strik.