Pétur Óskar lék á 69 höggum í Grafarholtinu í dag

-Pétur Óskar og Kristinn Wium unnu Opnu Mótaröðina 2010-
Síðasta mótið í Opnu Mótaröðinni fór fram á Grafarholtsvelli í dag. Alls mættu 87 keppendur til leiks og léku í rigningarúða í síðasta móti sumarsins hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Eins og í fyrri mótum okkar var ræst út af öllum teigum samtímis kl.10:00.
Í mótinu sem fram fór í dag lék Pétur Óskar Sigurðsson GR manna best í höggleik. Pétur lék Grafarholtið á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari vallarins. Í öðru sæti í dag var í höggleik Hannes Eyvindsson GR á 73 höggum. Í punktakeppni lék Lúðvík Vilhelmsson GHG mjög vel og skilaði 46 punktum í hús. Í öðru sæti jafnir með 40 punkta voru þeir Einar Ingvar Jóhannsson NK og Aron Atli Sigurðsson GR. Önnur úrslit í mótinu í dag má sjá með því að smella hér.
Úrslit í Opnu Mótaröðinni 2010 eru þau að í höggleik sigraði Pétur Óskar Sigurðsson GR og í punktakeppni sigraði Kristinn Wium GOB. Þessir tveir leikmenn léku best þeirra 474 kylfinga sem tóku þá í mótaröðinni í ár.
Í þeim fimm mótum sem haldin hafa verið á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðavelli í október hafa 474 kylfingar mætt til leiks. Óhætt er að segja að það veðurfar sem mótaröðin hefur fengið hafi ráðið miklu þar um.
Nándarverðlaun í mótinu sem fram fór á Grafarholtsvelli í dag:
2. braut – Einar Long GR 57cm
6. braut – Runólfur Birgisson GKG 1,10 metrar
11. braut – Sigurður Pétursson GR 1,81 metrar
17. braut – Pétur Óskar Sigurðsson GR 2,97 metrar
Hér má sjá úrslitin í Opnu mótaröðinni:
Punktar - Tveir bestu
Höggleikur - Tveir bestu
www.grgolf.is


