Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

PGA: Patrick Cantley sigraði eftir bráðabana
Patrick Cantley
Mánudagur 6. nóvember 2017 kl. 07:00

PGA: Patrick Cantley sigraði eftir bráðabana

Patrick Cantley sigraði í gær á sínu fyrsta PGA móti á ferlinum þegar að hann stóð uppi sem sigurvegari á Opna Shriners mótinu sem fram fór í Las Vegas. Þrír kylfingar voru jafnir eftir 72 holur og þurfti því að leika bráðabana um sigurinn. Það var að lokum Cantley sem sigraði.

Erfiðar aðstæður voru í Las Vegas um helgina þar sem mikill vindur var á svæðinu. Það virtist þó ekki hafa mikil áhrif á efstu menn því Cantley kom í hús á 67 höggum (-4), Alex Cejka lék á 63 höggum (-8) og Whee Kim lék á 66 höggum (-5), en þetta voru þeir kylfingar sem léku í bráðabananum.

Örninn 2025
Örninn 2025

Þeir enduðu allir á níu höggum undir pari. 18. holan var leikin í bráðabananum og þurfti að leika holuna tvisvar sinnum til þess að úrslit fengust í mótið. Í fyrra skiptið fengu allir þrír skolla á holuna. Í síðara skiptið var Cantley eini sem náði að fá par og tryggði hann sér því sinn fyrsta sigur á PGA mótaröðinni.

Hérna má sjá lokastöðuna í mótinu.