Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sandgerðingar fagna 25 ára afmæli með stækkun
Laugardagur 4. júní 2011 kl. 11:33

Sandgerðingar fagna 25 ára afmæli með stækkun

Golfklúbbur Sandgerðis fagnar 25 ára afmæli sínu á þessu ári og verður Kirkjubólsvöllur formlega tekinn í gagnið sem 18 holu golfvöllur í sumar. Sigurjón Gunnarsson var kjörinn formaður GSG á síðasta aðalfundi klúbbsins og kemur með ferska vinda inn í starf klúbbsins. Segja má að stjórnarbylting hafi átt sér stað í klúbbnum í vetur þegar ný stjórn var kosin. Nokkur átök voru innan klúbbsins þar sem hluti félagsmanna vildi slá stækkun vallarins á frest. Sigurjón segir að það viðhorf hljóti að hafa breyst nú þegar völlurinn er orðinn að veruleika. Hann telur að eftir breytingar vallarins sé Kirkjubólsvöllur orðinn einn af bestu strandvöllum landsins.

Það er mikil stemmning í klúbbnum yfir þessum tímamótum. Mikið sjálfboðastarf hefur verið lagt af mörkum á undanförnum vikum til að gera völlinn tilbúinn fyrir sumarið. Það ríkir mikil hamingja með hvernig hefur til tekist. Við munum halda upp á afmælið í sumar með pompi og prakt. Í júní verður slegið upp bæjarstjórnarmóti í tilefni af þessum tímamótum og degi síðar höldum við upp á afmælið með Opnu móti og afmælistertu,“ segir Sigurjón en í dag eru um 230 félagar í GSG.

Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá þeim kylfingum sem hafa leikið völlinn og þetta er mjög vel heppnað vallarstæði. Nýju holurnar koma mjög vel út og perlan á vellinum er 15. holan, stutt par-3 hola þar sem slegið er yfir vatn. Landslagið á nýrri hluta vallarins er frábært og það er hreinlega kraftaverk að við skulum hafa náð að koma vellinum í 18 holur á aðeins þremur árum og með litlu fjármagni. Við eigum einnig eftir að gera ýmsar lagfæringar á eldri hluta vallarins þannig að þetta á eftir að verða einn glæsilegasti strandvöllur landsins, ef hann er ekki orðinn það nú þegar,“ segir Sigurjón kátur en nánar er rætt við hann í nýjasta tölublaði Golfs á Íslandi sem kom út fyrir skömmu.

Mynd/Kylfingur.is: Sigurjón Gunnarsson vísar á nýja og skemmtilega par-3 braut á Kirkjubólsvelli þar sem slegið er yfir vatn.