Sandy Lyle býður sig fram sem fyrirliða Evrópu 2010
Skotinn Sandy Lyle hefur lýst yfir áhuga á að gerast næsti fyrirliði Ryder-liðs Evrópu og taka þar með við af Nick Faldo fyrir Ryder-bikarinn árið 2010. Lyle vann á sínum ferli tvö risamót. Lyle, sem varð fimmtugur í febrúar síðastliðnum hefur einnig verið bendlaður við að gerast aðstoðamaður Faldo í Ryder-bikarnum sem fram fer á þessu ári á Valhalla vellinum í Kentucky, Bandaríkjunum. Paul McGinley hefur nýlega gefið frá sér þá stöðu og segist ætla að einbeita sér að því að spila. Jose Maria Olazabal hefur einnig verið nefndur til sögunnar sem líklegur aðstoðamaður Flado.
Lyle á að baki farsælan ferli sem atvinnukylfingur og sigraði á Opna breska meistaramótinu árið 1985 og á Masters mótinu árið 1988. Lyle 27 sigraði á atvinnumót á sínum ferli.
Fyrirliðar liðanna síðstliðina tvo áratugi:
Bandaríkin Evrópa Ár
Paul Azinger Nick Faldo 2008
Tom Lehman Ian Woosnam 2006
Hal Sutton Bernhard Langer 2004
Curtis Strange Sam Torrance 2002
Ben Crenshaw Mark James 1999
Tom Kite Seve Ballesteros 1997
Lanny Wadkins Bernhard Gallacher 1995
Tom Watson Bernhard Gallacher 1993
Dave Stockton Bernhard Gallacher 1991
Mynd/Reuters: Sandy Lyle á að baki farsælan feril sem atvinnukylfingur og hefur nú boðið sig fram sem fyrirliða Evrópuliðsins árið 2010.


