Fréttir

Sei Young Kim sigraði á Marathon Classic
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
mánudaginn 15. júlí 2019 kl. 09:00

Sei Young Kim sigraði á Marathon Classic

Sei Young Kim stóð uppi sem sigurvegari á Marathon Classic mótinu sem kláraðist á sunnudaginn á LPGA mótaröðinni. Kim lék hringina fjóra á 22 höggum undir pari og varð tveimur höggum á undan Lexi Thompson sem varð önnur.

Sigur Kim var í raun aldrei í hættu en þegar einungis tvær holur voru eftir í mótinu var Thompson fimm höggum á eftir Kim. Thompson fékk svo fugl á 17. holu og örn á 18. holu og gulltryggði þar með annað sætið.

Stacy Lewis endaði í þriðja sæti, tveimur höggum á undan Jeongeun Lee6 sem endaði í fjórða.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var á meðal keppenda í mótinu en hún endaði í 74. sæti á 5 höggum yfir pari.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.