Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Setberg og Keilir í samstarf um umhirðu Setbergsvallar
Setbergsvöllur
Miðvikudagur 4. maí 2016 kl. 08:00

Setberg og Keilir í samstarf um umhirðu Setbergsvallar

Golfklúbburinn Setberg og Golfklúbburinn Keilir hafa gert með sér samning vegna umhirðu á Setbergsvelli árið 2016.

Í samningnum felst að Bjarni Hannesson vallarstjóri á Hvaleyrarvelli hefur yfirumsjón með umhirðu á Setbergsvelli.

Örninn 2025
Örninn 2025

Golfklúbburinn Keilir mun útvega starfsmann sem starfar á Setbergsvelli ásamt því að sjá um alla þá sérfræðiþjónustu sem þörf er á, s.s. ráðgjöf, áburðargjöf, söndun, götun og sáningu.

Það er markmið aðila samningsins að umhirða Setbergsvallar verði enn betri en hún hefur áður verið. Golfklúbburinn Keilir hefur yfir að ráða mikilli sérþekkingu og fjölbreyttum tækjakosti sem ætti að nýtast til þess að ná þessu markmiði.

Það er mikil hagræðing fólgin í þessum samningi fyrir báða aðila og verður að öllum líkindum til þess að auka til muna það góða samstarf sem ávallt hefur verið á milli þessara tveggja hafnfirsku golfklúbba.