Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Siggi Hafsteins er kylfingur vikunnar
Fimmtudagur 11. október 2012 kl. 15:25

Siggi Hafsteins er kylfingur vikunnar

Sigurður Hafsteinsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Sigurður er fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í golfi..

Sigurður Hafsteinsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Sigurður er fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í golfi, núverandi Íslandsmeistari eldri kylfinga, golfkennari og fararstjóri fyrir golfara á Spáni þar sem nýlega var plantað tré honum til heiðurs á golfvellinum á Islantilla.  Hann hefur keppt í Evrópukeppni félagsliða, Norðurlandamóti landsliða, Evrópukeppni einstaklinga fyrir Íslands hönd, Heimsmeistaramóti atvinnumanna á Jamaica og síðast en ekki síst komst Sigurður á lokastig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröð eldri kylfinga í Portúgal haustið 2006.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Ég byrjaði 11 ára sem kylfusveinn fyrir nokkra kylfinga, m.a. Harald Júlíusson (Gullskalla) og Svein Ársælsson í tvö ár en fór svo að spila sjálfur.  Pabbi minn, Hafsteinn Þorgeirsson var í golfi og var t.d. klúbbmeistari Keilis fyrstu þrjú árin.  Hann var framkvæmdastjóri GR og við bjuggum í golfskálanum í Grafarholti veturinn 1969-1970.

Hefur þú verið í öðrum íþróttum? 
Var í fótbolta í Fylki upp í 3. flokk en síðan tók golfið yfir.

Helstu afrek í golfinu?
Hef unnið fjögur stigamót. Lenti í 3. sæti á Íslandsmótinu í höggleik í Leirunni 1992 eftir umspil við Þorbjörn Kjærbo á eftir Hannesi Eyvinds og Gylfa Kristinssyni. Hef unnið meistaramót GR og síðast en ekki síst orðið Íslandsmeistari öldunga sl. 2 ár.

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Þurfti eitt sinn sjö högg upp úr glompu á 1.braut á Íslandsmóti á Akureyri og endaði hana á 12 höggum.

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Stutta spilið er gott en skortur á högglengd var veikleiki þar til ég sætti mig við hana. Nú hugsa ég bara um að slá næsta högg og fara svo og hjálpa hinum að leita...

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?
Ballesteros fyrir skemmtilegt keppnisskap og Jack Nicklaus eftir að hann kom hingað og sýndi golf.  Á Íslandi; Siggi P. Hann var frábær kylfingur.  Aðrir kylfingar sem ég lít upp til eru t.d. Ragnar Ólafs. – Björgvin Þorsteins og Hannes Eyvinds.

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Tvisvar farið holu í höggi. Á 6. braut í Grafarholti og 10. braut Old Course Vila Moura í Portúgal.

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
Jóhann Helga, Maggi Kjartans og Sigga Beinteins að ógleymdum Stebba og Eyva.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Barry Lane sem ég vann í Canon móti hjá Keili, John Bickerton og Manual Pinero.

Hvaða keppnisfyrirkomulag er skemmtilegast í golfi og hvers vegna?
Holukeppni. Nánar tiltekið fjórmenningur vegna félagslega þáttarins.

Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
Örugglega. En er ekki viss um hvernig.

Hvert er uppáhaldshöggið í golfi? 
Erfiðu höggin eru skemmtilegust.  Gaman að leysa vandamál og nota ímyndunaraflið.  Þess vegna er svo gaman af fjórmenningi þar sem ýmis óvænt vandamál geta skotið upp kollinum.

Besti golfvöllur sem þú hefur leikið á?
Bay Hill og Turnberry. Einnig má nefna Royal Troon og Prestwick.

Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf? 
Bið á golfvelli er leiðinlegust.  Félagsskapurinn og hefðin eru það skemmtilegasta við golfið.

Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
Trúna á sjálfan sig. Ég tel að mesti óvinur kylfingsins sé að hafa ekki trú á sjálfum sér.

Hvaða þrjá golfholur hér á landi eru í sérstöku uppáhaldi? 
1. braut í Grafarholti er ein af betri upphafsholum og 18. brautin besta lokaholan.  Einnig er 18. brautin á Akureyri mjög skemmtileg lokahola þar sem oftast nær eru einhverjir áhorfendur sem auka pressuna.

Staðreyndir
Nafn: Sigurður Helgi Hafsteinsson.
Aldur: 56
Klúbbur: GR
Forgjöf: 3,0
Fyrirmynd: Pabbi minn
Ryderinn eða Opna breska? Ryderinn.
Hvaleyri eða Grafarholt? Grafarholt.
Rory McIlroy eða Luke Donald? Luke Donald er góð fyrirmynd fyrir nemendur mína. Örugg og einföld sveifla.
Uppáhalds matur: Mömmumatur.
Uppáhalds drykkur: Einn kaldur eftir 18 holur, sérstaklega á Spáni er besti drykkur í heimi.
Uppáhalds golfhola: 1. braut í Grafarholti.
Erfiðasta golfholan: Sú sem ég hræðist mest er 18. á Hvaleyrinni.
Ég hlusta á: Rolling Stones.
Besti völlurinn á Íslandi: Bestu flatir á Korpu og GKG kom mér skemmtilega á óvart í sumar. Vestmannaeyjar og Akureyri einnig í uppáhaldi.
Besta skor: 66 á Kiðjabergi og í Grindavík.
Besta vefsíðan: Kylfingur.is
Besta blaðið: GolfTips.
Besta bókin: Bankabókin.
Besta bíómyndin: „Follow the Sun“ sem segir ævisögu Ben Hogan.
Besti kylfingurinn: Í dag er Rory McIlroy bestur en Tiger Woods er besti kylfingur allra tíma.

Golfpokinn
Dræver: Ping G20
Brautartré: 4-tré Ping G20
Járn: Ping i20
Fleygjárn: Ping Tour 52° og 58°
Pútter: Ping Anser 4
Hanski: Nota ekki hanska. Hætti því 2006 þegar ég setti grennra grip á kylfurnar og fannst það gott, en ég þríf gripin reglulega og þá eru gripin stöm eins og með Harpix.
Skór: Ecco street. Fer í þá á vorin og úr þeim á haustin.