Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Spánverjinn Trappel Evrópumeistari - Ólafur lauk leik með góðum hring
Sunnudagur 7. ágúst 2011 kl. 13:09

Spánverjinn Trappel Evrópumeistari - Ólafur lauk leik með góðum hring

Evrópumóti einstaklinga lauk á Halmstad vellinum í Svíþjóð í gær og var það Spánverjinn Manuel Trappel sem fagnaði sigri. Trappel hafði betur gegn Englendingnum Steven Brown í umspili um sigurinn en þeir léku báðir samtals á tíu höggum undir pari í mótinu.

Íslensku kylfingarnir Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR tóku þátt í mótinu en komust ekki í gegnum niðurskurðinn sem miðaður var fyrir lokahringinn. Ólafur Björn átti þó sinn besta hring á föstudag þegar hann lék á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Ólafur lék samtals á sjö höggum yfir pari í mótinu.

Guðmundur Ágúst fann sig engan veginn á þriðja hring og lék á 81 höggi. Hann lék samtals á 16 höggum yfir pari í mótinu eftir ágæta byrjun þegar hann lék á 73 höggum. Mótið er eitt af sterkustu áhugamannamótum sem haldin eru á hverju ári. Í mótinu keppa bestu áhugakylfingar Evrópu og hafa margir stórir kylfingar stigið sín fyrstu skref í átt að atvinnumennsku í mótinu. Þar nægir að nefna Sergio Garcia, Lee Westwood og Rory McIlroy sem hafa allir náð frábærum árangri sem atvinnumenn.

Lokastaðan í mótinu