Fréttir

Staðan fyrir Tour Championship mótið og hvernig mótið fer fram
Justin Thomas.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
þriðjudaginn 20. ágúst 2019 kl. 13:00

Staðan fyrir Tour Championship mótið og hvernig mótið fer fram

Lokamót tímabilsins á PGA mótaröðinni, Tour Championship mótið, hefst nú á fimmtudaginn og ræðst á sunnudaginn hvaða kylfingur fer heim með FedEx bikarinn og 15 milljónir dollara sem í boði eru fyrir þann sem endar efstur á FedEx stigalistanum.

Eins og greint var frá fyrr í morgun er Justin Thomas efstur að stigum fyrir lokamótið en sú nýbreyttni er á mótinu í ár að í stað þess að fá stig í loka mótsins þá byrjar efsti maður stigalistans á 10 höggum undir pari. Thomas byrjar því á 10 höggum undir pari á meðan Patrick Cantlay sem er í öðru sæti stigalistans byrjar á átta höggum undir pari og koll af kolli.

Kylfingarnir sem eru í neðstu sætum stigalistans byrja á parinu og þurfa þeir því einfaldlega að vinna upp þessi 10 högg til þess að hampa FedEx bikarnum. Áður fyrr gátu kylfingar sem voru í efstu fimm sætum stigalistans fyrir lokamótið unnið FedEx bikarinn og allan peninginn einfaldlega með því að vinna Tour Championship mótið. Kylfingar í sætum 6-30 átta möguleika á að vinna bikarinn en þurftu að treysta á að ákveðnir aðilar enduðu neðar en eitthvað ákveðið sæti. Með núverandi fyrirkomulagi hefur PGA mótaröðin komið í veg fyrir að sú staði komi upp og vill gefa öllum 30 kylfingum tækifæri á að vinna bikarinn eftirsóknarverða.

Staðan í byrjun móts:

Sæti Nafn Stig Skor í byjun móts
1 Justin Thomas 3.475 -10
2 Patrick Cantlay 3.157 -8
3 Brooks Koepka 3.119 -7
4 Patrick Reed 2.946 -6
5 Rory McIlroy 2.842 -5
6 Jon Rahm 2.517 -4
7 Matt Kuchar 2.339 -4
8 Xander Schauffele 2.030 -4
9 Webb Simpson 1.946 -4
10 Abraham Ancer 1.940 -4
11 Gary Woodland 1.912 -3
12 Tony Finau 1.911 -3
13 Adam Scott 1.874 -3
14 Dustin Johnson 1.840 -3
15 Hideki Matsuyama 1.821 -3
16 Paul Casey 1.768 -2
17 Justin Rose 1.739 -2
18 Brandt Snedeker 1.709 -2
19 Rickie Fowler 1.637 -2
20 Kevin Kisner 1.635 -2
21 Marc Leishman 1.587 -1
22 Tommy Fleetwood 1.479 -1
23 Corey Conners 1.476 -1
24 Sungjae Im 1.407 -1
25 Chez Reavie 1.394 -1
26 Bryson DeChambeau 1.371 Par
27 Louis Oosthuizen 1.355 Par
28 Charles Howell III 1.345 Par
29 Lucas Glover 1.337 Par
30 Jason Kokrak 1.254 Par