Stórstjörnur í auglýsingaherferð gegn hægum leik
Tiger Woods, Arnold Palmer og Clint Eastwood fara fremstir í flokki í nýrri auglýsingaherferð sem bandaríska golfsambandið stendur fyrir. Markmiðið er að vekja athygli kylfinga á að hægur leikur er að „drepa“ golfíþróttina víðsvegar um heiminn. Woods, Palmer og Eastwood eru áberandi í sjónvarpsauglýsingunum þar sem að frasi úr kvikmyndinni Caddyshack er notaður sem rauður þráður í herferðinni.
"While we’re young" frasinn kom frá karakter sem Rodney Dangerfield lék í Caddyshack. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá hvernig hann bar sig að í þeirri mynd. Auglýsingaherfð USGA hófst í aðdragana Opna bandaríska meistaramótsins og þykir vera vel heppnuð.
„Leikhraði er mikilvægt atriði í golfi, það er erfitt að njóta þess að spila ef það tekur of langan tíma,“ sagði Tiger Woods þegar auglýsingaherfðinni var hrint af stað. Woods fær sjálfur að heyra það frá ungum krökkum í einni auglýsingunni.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þessum auglýsingum auk myndbrots úr Caddyshack.


