Þórður Rafn náði sínum besta árangri á EPD mótaröðinni
Þórður Rafn Gissurarson endaði í sjötta sæti á CEEVEE Leather mótinu sem lauk í dag í Þýskalandi. GR-ingurinn lék lokahringinn á 71 höggi eða einu höggi undir pari Glashofen-Neusaß vallarins. Samtals lék Þórður hringina þrjá á 3 höggum undir pari vallar (73-69-71).
Mótið er hluti af EPD mótaröðinni í Þýskalandi og var sigurvegarinn á 6 höggum undir pari vallar. Þetta er langbesti árangurinn hjá Þórði á þessu tímabili en hann hefur nú leikið á 11 mótum á tímabilinu. Þórður komst ekki í gegnum niðurskurðinn á sex fyrstu mótunum en á síðustu fimm mótum hefur hann náð betri árangri og komsti í gegnum niðurskurðinn á öllum nema einu.