Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Tiger kominn aftur - leiðir á Chevron World Challenge
Föstudagur 3. desember 2010 kl. 09:20

Tiger kominn aftur - leiðir á Chevron World Challenge

Tiger Woods byrjar vel á Chevron World Challenge mótinu sem að fram fer á Sherwood Country Club vellinum í Kaliforníu um helgina. Woods leiðir hóp frambærilegra kylfinga eftir fyrsta hring en hann lék Tiger á 7 undir pari eða 65 höggum alls. Hann jafnaði þarna besta skor sitt á tímabilinu en honum mistókst aðeins tvisvar að hitta flötina og fjórum sinnum kom hann sér í tækifæri til að ná erni. Einu höggi á eftir Tiger koma svo þeir Graeme McDowell og Rory McIIroy.

Tiger virtist aðeins eiga í vandræðum þegar að kom að púttunum en hann bætti upp fyrir það með glæsilegri spilamennsku á öllum öðrum vígstöðum.

Örninn 2025
Örninn 2025

„Það er ekki oft sem sem ég leik á 65 höggum eftir að hafa aðeins verið sáttur með eitt pútt, þannig var það nú samt í dag,“ sagði Tiger. „Ég setti aðeins eitt pútt niður, það kom á 9. holu. Annars var ég að tvípútta og boltinn var að skoppa hjá mér á flötunum. En ég var að slá vel í dag,“ bætti Woods við.

Norður-Írarnir McDowell og McIIroy léku báðir á 66 höggum og litu ansi vel út. Báðir fengu þeir örn á 11.holu sem er par 5 hola.

Dustin Johnson lék vel á fyrri 9 og endaði á 69 höggum sem og Stewart Cink sem er að vinna í breytingum í púttunum hjá sér. Luke Donald og Camilo Villegas léku báðir á 70 höggum en engir aðrir léku á undir pari vallarins.

Heitt var í veðri og flatirnar óvenju hraðar. Sherwood völlurinn býður upp á ýmis vandræði og auðvelt er að ná sér í hátt skor. Anthony Kim lék meðal annars á 79 höggum.

Nú er síðasti möguleiki fyrir Tiger Woods að sigra á árinu 2010 en hann virðist vera að koma sér í gírinn fyrir komandi tímabil. Hann lék einnig á 65 höggum á lokdegi Ástralska Masters fyrir skömmu og hefur því leikið tvo slíka hringi í röð. Núna lék hann þó á annan hátt. Í Ástralíu lék hann síðustu 6 holurnar á 6 undir pari og fékk meðal annars tvo erni. Sama var uppi á teningnum í Ryder bikarnum þar sem hann lék síðustu 7 holurnar á 7 undir pari. Nú virtist þó sem að stöðuleiki væri kominn í leik Tiger Woods.

„Þetta er ég búinn að vera að segja, þetta tekur allt sinn tíma,“ sagði Woods. „Ég var að spila vel á köflum, tvær, þrjár, fjórar, fimm holur kannski og svo ekki meir. Ég þarfnaðist þess að leika heilsteyptan hring og að lokum heilsteypt mót. Í dag lék ég heilsteyptan hring svo að þetta byrjar vel.“

Aðrir kylfingar virtust taka eftir því að Tiger var að leika vel og meðal þeirra var Ian Poulter sem lék á 72 höggum.Hann sá ástæðu til að skella inn línu á Twitter síðu sína. „Nr.2 var að leika vel í dag, 7 undir pari og leiðir á Chevron World, ekki langt frá sínu besta formi og maður verður að vara sig,“ hafði Ian Poulter á orði um Tiger Woods.

Hér má sjá stöðuna í mótinu að loknum fyrsta degi.