Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Tinna og Axel tilnefnd sem íþróttamenn Hafnarfjarðar
Föstudagur 30. desember 2011 kl. 07:48

Tinna og Axel tilnefnd sem íþróttamenn Hafnarfjarðar

Kylfingarnir Tinna Jóhannsdóttir og Axel Bóasson, bæði úr Keili, voru tilnefnd sem íþróttamenn Hafnarfjarðar árið 2011. Það voru þau Hafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH og Eyjólfur Þorsteinsson, hestaíþróttamaður úr Sörla voru krýnd íþróttamenn Hafnarfjarðar við fjölmenna athöfn sem fram fór í Íþróttahúsinu við Strandgötu í gærkvöld.

Örninn 2025
Örninn 2025

Axel varð Íslandsmeistari í höggleik í ár og lék vel á Eimskipsmótaröðinni í sumar. Tinna vann tvö mót af þeim þremur sem hún tók þátt í á mótaröðinni í sumar og varð í öðru sæti í Íslandsmótinu í höggleik.

Tuttugu og einn afreksmaður fékk sérstaka viðurkenningu fyrir árangur og frammistöðu í sínum íþróttagreinum á þessu ári:
Matthías Vilhjálmsson FH Knattspyrna
Ólafur A. Guðmundsson FH Handknattleikur
Óðinn Björn Þorsteinsson FH Frjálsar íþróttir
Aron Rafn Eðvarðsson Haukar Handknattleikur
Axel Bóasson GK Keilir Golf
Tinna Jóhannsdóttir GK Keilir Golf
Eyjólfur Þorsteinsson Sörli Hestaíþróttir
Freyja H. Jósepsdóttir Björk Fimleikar
Hrafn Traustason SH Sund
Hrafnhildur Lúthersdóttir SH Sund
Torben Gregersen SH Þríþraut
Birna Björnsdóttir SH Þríþraut
Sigurður Már Atlason DÍH Dans
Sara Rós Jakobsdóttir DÍH Dans
Pálmi Guðlaugsson Íþr.f Fjörður Sund
Kolbrún Alda Stefánsdóttir Íþr.f Fjörður Sund
Bryndís Einarsdóttir AÍH Akstursíþróttir
Sigurþór Jóhannesson SÍH Skotíþróttir
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir BH Tennis
Dóra Hlín Loftsdóttir FH Frjálsar íþróttir
Hilmar Örn Jónsson FH Skylmingar