Fréttir

Valdís bætti sig um tvö högg | Óvíst hvort hún komist áfram
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
föstudaginn 6. desember 2019 kl. 09:19

Valdís bætti sig um tvö högg | Óvíst hvort hún komist áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir bætti sig um tvö högg milli hringja á lokamóti ársins á Evrópumótaröð kvenna, Magical Kenya Ladies Open. Eftir hring upp á 74 högg í dag er Valdís samtals á sex höggum yfir pari og jöfn í 67. sæti.

Líkt og í gær voru það holur 1-9 sem gerðu Valdísi erfitt fyrir en í mótinu er hún á átta höggum yfir pari á þeim holum. Í dag byrjaði hún á fyrstu holu og lék fyrri níu holurnar á tveimur höggum yfir pari, þar sem hún fékk tvo fugla, tvo skolla og einn skramba. Á þeim síðari fékk hún tvo fugla og tvo skolla og kom því í hús á tveimur höggum yfir pari.

Þegar fréttin er rituð er Valdís einu höggi frá því að komast gegnum niðurskurðinn en þar sem margar eiga enn eftir að ljúka leik er möguleiki á að hún komist áfram.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.