Valdís og Berglind hefja leik á lokamóti LET Access á morgun
Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL og Berglind Björnsdóttir úr GR hefja leik á morgun á lokamóti LET Access atvinnumótaraðarinnar. Valdís er á sínu þriðja tímabili á þessari atvinnumótaröð sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Berglind Björnsdóttir fékk boð um að taka þátt en hún er Íslandsmeistari í holukeppni 2016 á Eimskipsmótaröðinni og var í landsliði Íslands á EM og HM á þessu ári.
Valdís Þóra hefur leikið á 10 mótum á þessu tímabili á LET Access mótaröðinni og er í 38. sæti á stigalistanum. Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á fimm mótum og besti árangur hennar er þriðja sæti.
Valdís þarf líklega að leika á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina í Marokkó í desember á þessu ári. Tuttugu stigahæstu kylfingarnir á LET stigalistanum fara beint inn á lokaúrtökumótið. Valdís gæti með góðum árangri á lokamótinu á Spáni bætt stöðu sína á stigalistanum og komist í hóp 20 efstu.
Hér má sjá skor mótsins á morgun.