Fréttir

Valdís um miðjan hóp í Kenýu
Valdís Þóra Jónsdóttir
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
fimmtudaginn 5. desember 2019 kl. 14:45

Valdís um miðjan hóp í Kenýu

Valdís Þóra Jónsdóttir hóf í dag leik á Magical Kenya Ladies Open mótinu á Evrópumótaröð kvenna en eins og nafnið gefur til kynna er mótið leikið í Kenýu. Eftir fyrsta hring situr Valdís jöfn í 57. sæti á fjórum höggum yfir pari.

Valdís lék mjög stöðugt golf á fyrstu 9 holunum en hún hóf leik á 10. holu og fékk fugl á holum 11 og 17 en paraði hinar og var því á tveimur höggum undir pari. Seinni holurnar voru ögn skrautlegri en þar fékk hún tvö pör, tvo fugla, tvo skolla og þrjá tvöfalda skolla. Hún lék því seinni 9 holurnar á sex höggum yfir pari og kom í hús á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari.

Hér má sjá stöðuna í mótinu.