Viðbrögð á Twitter við ráðningu McGinley
Það virðast flestir vera sáttir með ráðningu Paul McGinley sem fyrirliða Evrópu í Ryder-bikarnum á næsta ári. Ef marka má Twitter þá ríkir nokkur ánægja með þessa ákvörðun og þá sérstaklega meðal liðsmanna Evrópu. Hér að neðan má sjá helstu ummæli þekktra kylfinga.
Tom Watson@TomWatsonPGAPro
Óska Paul McGinley til hamingju með fyrirliðastöðuna í Ryder-bikarnum. Hlakka til keppninnar. Þú ert heiðursmaður.
Rory McIlroy@McIlroyRory
Almenn skynsemi hafði betur að lokum...Paul McGinley fyrirliði Evrópu 2014. Gæti ekki verið ánægðari fyrir hans hönd...Rúllum á Gleneagles.
Graeme McDowell@Graeme_McDowell
Til hamingju Paul McGinley fyrirliði Evrópu ’14. Hann verður hugulsamur, nákvæmur, undirbúinn, hvetjandi, sanngjarn og virtur fyrirliði #euro
Luke Donald@LukeDonald
Afar glaður fyrir hönd Paul McGinley. Ástríða hans og nákvæmni fyrir smáatriðum mun nýtast Team Evrópu mjög vel. #2014RyderCup
Nicolas Colsaerts@Coelsss
Til hamingju Paul McGinley...verðskulduð fyrirliðastaða.
Paul lawrie@PaulLawriegolf
Risastórar hamingjuóskir til Paul McGinley sem fyrirliða í Ryder-bikarnum 2014. Vona að ég verði í liðinu þínu.
Ian Poulter@IanJamesPoulter
Paul McGinley sem fyrirliði í Ryder-bikarnum...er afar ánægður með að hann hafi fengið tækifæri til að leiða liðið 2014.
Matteo Manassero@ManasseroMatteo
Hér er það ... Til hamingju Paul McGinley 2014 fyrirliði í Ryder-bikarnum. Vona að ég verði hluti af liðinu #RyderCup2014
Sandy Lyle@SandyLyle1
Til hamingju og góðar kveðjur til fyrirliðans okkar í Ryder-bikarnum 2014 Paul McGinley.
Fleiri viðbrögð kylfinga má finna á Twitter með því að leita #rydercup.