Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Video: Gömlu kempurnar efstar í móti hákarlsins
Sunnudagur 12. desember 2010 kl. 12:54

Video: Gömlu kempurnar efstar í móti hákarlsins

Fred Funk og Kenny Perry, báðir komnir á sextugsaldurinn, sýndu að þeir hafa engu gleymt á golfvellinum þrátt fyrir að aldurinn sé byrjaður að færst yfir. Þeir léku á 62 höggum eða tíu höggum undir pari á Tibourn golfvellinum í Flórída þar sem Shark Shootout mótið fer fram en Greg Norman stendur að mótinu.

Funk og Perry eru efstir í mótinu á 18 höggum undir pari og eru jafnir meisturum síðasta árs, Jerry Kelly og Steve Stricker. Dustin Johnson og Ian Poulter eru svo höggi á eftir og því stefnir allt í æsispennandi lokahring í dag.
Perry byrjaði með miklum látur í gær og fékk sex fugla í röð á fyrstu sex holunum. Hann var nálægt því að fá sjöunda fuglinn en rétt missti. Liðsfélagi hans hefur aldrei séð annað eins.

Enginn hefur slegið svona vel svo ég hafi séð. Þetta var ótrúlegt. Ég hef séð marga leika vel á 18 holum en þessar 7 holur hjá Perry voru í sérflokki hvað varðar gæði,“ sagði Funk eftir hringinn.

STAÐAN Í MÓTINU

Mynd/golfsupport.nl: Kenny Perry var flottur í gær.