Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

VITAgolf: Tvískiptar ferðir og Flórída meðal nýjunga
Morgado í Portúgal var meðal nýjunga fyrr á þessu ári hjá VITA.
Sunnudagur 31. maí 2015 kl. 12:40

VITAgolf: Tvískiptar ferðir og Flórída meðal nýjunga

Golfferðir til Flórída og tvískiptar ferðir á Spáni eru meðal nýjunga hjá VITA-golf á komandi hausti. Sala haustferða hófst nú í lok maímánaðar.

Áfram verður boðið upp á vinsælasta áfangastaði eins og Islantilla, El Rompido, Nuevo Portil og Valle del Este á Spáni og Penina og Morgado í Portúgal. Peter Salmon segist spenntur yfir viðtökum á nýjung sem eru tvískiptar ferðir þar sem gist er 5 nætur á hvorum stað. Á Morgado og Penina í Portúgal og á Nuevo Portil og El Rompido á Spáni. Akstur á milli hótela í hvorri ferð er einungis um 10-15 mín.

Þá segist Peter einnig vera spenntur fyrir nýjum ferðum á Van der Valk golfsvæðið í Flórída. Kylfingurinn kunni Sveinn Sveinsson verður fararstjóri og dæmi um verð er 274 þús. kr. auk 12.500 vildarpunkta fyrir gistingu í vel búnu húsi með 2 svefnherbergjum og sundlaug, golf daglega með golfbíl og flugstæði til og frá Orlando.