Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Wesley Bryan leikur með Taco Bell bolta um helgina
Wesley Bryan
Þriðjudagur 30. janúar 2018 kl. 12:00

Wesley Bryan leikur með Taco Bell bolta um helgina

Wesley Bryan, sem leikur í dag á PGA mótaröðinni, var hvað þekktastur fyrir það að vera hluti af Bryan Bros brelluhöggshópnum. Síðan þá hefur hann hefur fært sig algjörlega yfir í það að spila sem atvinnumaður.

Árið 2016 lék hann á Web.com mótaröðinni og vann það ár þrisvar sinnum á mótaröðinni og tryggði sér þannig þátttökurétt á PGA mótaröðinni fyrir árið 2017. Á árinu 2017 vann hann svo sitt fyrsta PGA mót þegar að hann stóð uppi sem sigurvegari á RBC Heritage mótinu. 

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Eftir sigur á Web.com mótaröðinni og eftir sigurinn í fyrra á PGA mótaröðinni fagnaði Bryan með því að fara á Taco Bell matsölustaðinn. Í fyrra sumar skrifaði hann svo undir samning við fyrirtækið, en hann segist elska Taco Bell.

Nú hefur Bryan staðfest að hann muni spila með bolta sem verða merktir Taco Bell í bak og fyrir. Það verður gaman að sjá hvernig honum muni ganga, en boltana má sjá hér að neðan.