Westwood: Finn ekki fyrir aukapressu
Lee Westwood segist ekki finna fyrir aukinni pressu eftir að hann varð efsti kylfingurinn á heimslistanum. Hann er meðal þátttakenda á Nedbank Golf Challenge mótinu sem fram fer í Suður-Afríku.
“Það er enginn aukapressa,” sagði Westwood við blaðamenn í gær. “Ástæða þess að ég er númer eitt í heiminum er vegna þess að ég hef verið að leika vel og ef það settur aukapressu á þig þá ertu að gera eitthvað rangt.”
“Ég átti gott ár. Ég varð fyrir vonbrigðum með að lenda í meiðslum þegar ég var að spila vel í júní. Ég hef leikið í þremur höggleiksmótum frá Opna breska og lakasti árangurinn er 11. sætið. Ég er mjög ánægður með hvernig ég hef spilað að undanförnu,” sagði Westwood en mótið um helgina er það síðasta á þessu ári hjá þessum enska kylfingi.
Myndir/golfsupport.nl