Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Westwood segir atvinnukylfinga fá of mikið borgað
Mánudagur 19. desember 2011 kl. 18:20

Westwood segir atvinnukylfinga fá of mikið borgað

Englendingurinn Lee Westwood segir að atvinnukylfingar í dag fái alltof mikið borgað fyrir að spila golf. Westwood er á meðal þeirra kylfinga sem hafa aflað sér mestra tekna á árinu en kylfingar í fremstu röð fá jafnan um 70-130 milljónir fyrir sigra í stærstu mótum ársins.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Þegar kylfingar hefja ferilinn á mótaröðunum þá þurfa þeir ákveðna fjárhæð til að halda keppnisrétti sínum. Við mætum í mót til að vinna titla og peningurinn fylgir því. Ég tel mig vera mjög heppinn og við fáum alltof mikið borgað þegar miðað er við lögreglumenn, kennarar og hjúkrunarfræðinga. Þegar við stöndum okkur vel þá fáum við mikið borgað en þegar okkur gengur illa þá fáum við ekkert borgað,“ segir Westwood í viðtali við The Independent.

Westwood hugsar ekki mikið um þær fjárhæðir sem hann vinnur sér inn á hverju ári og væri meira til í að vinna risatitil. „Ferill kylfinga snýst á endanum um risatitla. Ég er endalaust spurður um þetta. Ég myndi elska að ná að vinna eitt risamót; það er ástæðan fyrir því að ég æfi mikið. Ég er stundum gagnrýndur og það kemur mér sífellt á óvart. Ég horfi á ferilinn minn og hugsa að ég hafi náð lengra en ég átti von á. Ég hef unnið 36 mót í fimm heimsálfum.“