Golfvellir

The Oxfordshire
Föstudagur 24. maí 2019 kl. 06:54

The Oxfordshire

The Oxfordshire - frábær valkostur á Englandi

Íslenskir kylfingar hafa á undanförnum árum verið iðnir við að heimsækja frábæra golfvelli sem eru í boði við London á Englandi. Nýverið bættu GB-ferðir við einum valmöguleika í golfferðapakka fyrirtækisins . Jóhann Pétur Guðjónsson, eigandi GB-ferða, segir að The Oxfordshire golfhótelið sé frábær valkostur fyrir alla kylfinga.

„The Oxfordshire er frábært golfhótel með einum af okkar uppáhaldsvöllum á Londonsvæðinu.  Þetta nýja hótel er í aðeins  40 mínútna fjarlægð  frá Heathrow flugvelli og aðeins 30 mín frá Oxford.  Landareignin er rúmlega eitt hundrað hektarar af sveitasælu í skjóli frá ys og þys stórborgarinnar.

Hótelið er 4 stjörnu og á því eru 50 herbergi.  Á hótelinu eru 2 veitingastaðir, bar, lounge með fríu interneti heilsulind og sundlaug.  Klúbbhúsið er hluti af hótelinu. Þar er enn einn veitingastaðurinn og bar, risastórt búningsherbergi með sturtuaðstöðu og golfverslun.  Fyrsti teigur á golfvellinum er aðeins nokkrum skrefum frá hótelinu ásamt æfingasvæðinu og púttflötum.

Golfvöllurinn er par 72 og hannaður af Rees Jones.  Völlurinn er 6700 metra langur af öftustu teigum og gríðarlega skemmtilegur.  Við spiluðum hann af gulum teigum þar sem hann er 5.600 metrar.  Af rauðum teigum er völlurinn 5.000 metrar. Völlurinn byrjar skemmtilega.  Fyrsta holan er 350 m löng par 4. Teigurinn er upphækkaður og eina hættan er sanglompa sem er vinstra megin við brautina.  Lengstu menn eiga möguleika á að fara inná flötina.  Önnur holan er þægileg par 3 hola 115 metrar.  Allir eiga að geta farið vel af stað.  Allar holur vallarins eru mjög skemmtilegar og einstakar.  Uppáhaldsholurnar okkar eru 4., 7., 8., 17. og 18. 

Nánari upplýsingar á vef GB-ferða:

Það er búið að setja mikla peninga í þennan völl og hann er einstaklega skemmtilegur.  Þegar ég spilaði hann síðast þá spilaði ég einnig Stoke Park og The Grove í sömu ferð.  Það er skemmst frá því að segja að The Oxfordshire var betri en hinir tveir þó um ofurvelli sé að ræða og þó að komið hafi verið fram í nóvember voru flatirnar í fantaformi.  Þetta segir manni að The Oxfordshire er svokallaður „must play“ völlur.  Hönnuður vallarins, Rees Jones,  hefur hannað og endurhannað ótal velli.  Hann hefur m.a. endurhannað ofurvelli á borð við Bethpage, Torrey Pines, Medina, Baltrusrol, Congressional og Hazeltine,“ sagði  Jóhann Pétur Guðjónsson hjá GB Ferðum.