„Vaxandi trú á árangri á stóra sviðinu meðal okkar kylfinga“
Verkefni landsliðshóps Golfsambands Íslands eru af ýmsum toga. „Við teljum mikilvægt að hlúa sem best að okkar kylfingum“, segir Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ.
Landsliðshópur Golfsambands Íslands kom saman til æfinga fyrstu helgina í mars. Farið var yfir ýmislegt með hópnum en auk hefðbundinna golfæfinga var farið í markaðs- og kynningarmál, kostun, fjölmiðlaframkomu og ímyndaruppbyggingu. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ og Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, héldu erindi sem snéri að þessum þáttum.
Kylfingur ræddi við Ólaf Björn eftir æfingahelgi hópsins. Hann segir það hafa verið dýrmætt fyrir hópinn að hafa fengið að njóta innsýnar Huldu.
„Hulda býr yfir mikilli reynslu og fjölbreyttum bakgrunni í markaðsmálum og í fjölmiðlum og er hafsjór af fróðleik þegar kemur að þessum málum. Ég fann að leikmenn voru þakklátir því að kynnast þessu mikilvæga sviði afreksíþrótta“, segir Ólafur Björn Loftsson.
Þetta var fjórða helgin í vetur sem landsliðið kemur saman. Ólafur Björn segir að það hafi þurft að fella út eina skipulagða helgi í byrjun janúar þegar ástandið var erfitt vegna Covid. Á helgi tvö hafi svo verið lögð áhersla á atvinnu- og háskólakylfinga.
Yngstu kylfingarnir í landsliðshópnum eru fæddir árin 2007 og 2008. Aðspurður segir Ólafur ákveðna skörun vera á milli aldurshópa.
„Markmiðið er að kynna yngstu landsliðskylfingunum fyrir þessu umhverfi hægt og bítandi, þeir njóta svo sannarlega góðs af því að vera komnir inn í þessa umgjörð. Af þessum yngstu sem eru í landsliðshópnum þá eru þetta okkar allra efnilegustu kylfingar í þessum aldursflokki. Þetta eru þeir bestu og efnilegustu í augnablikinu sem hafa mikla ástundun og hve háleitustu markmiðin.“
„Við erum jafnframt að sinna hæfileikamótun fyrir þá kylfinga sem eru að stíga stökk upp í afreksmiðaðra umhverfi. Við fylgjumst grannt með kylfingum á aldrinum 11-15 ára og reynum að kveikja og viðhalda áhuga þeirra. Tæplega 60 ungum og efnilegum kylfingum var boðið á skemmtilegan og fræðandi viðburð í samstarfi við Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur í desember. Markmiðið er að höfða til þessa hóps með reglulegu millibili en um ræðir unga kylfinga sem koma næstir á eftir landsliðskylfingunum”, segir Ólafur Björn.
Ólafur Björn Loftsson var ráðinn afreksstjóri GSÍ í fyrra en áður var hann aðstoðarafreksstjóri GSÍ og framkvæmdastjóri PGA á Íslandi. Hann er einn reynslumesti landsliðsmaður Íslands og eini íslenski kylfingurinn sem hefur fengið tækifæri til að keppa á móti á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann segist hafa viljað einfalda landsliðsfyrirkomulagið og bæta sýnileika landsliðskylfinga en golfíþróttin getur verið ögn flókin út á við þegar kemur að áhuga- og atvinnumennsku og mismunandi leikfyrirkomulagi.
„Ég ákvað að fara þá leið að vera með einn landsliðshóp og til einföldunar skipta kylfingunum ekki niður í smærri hópa. Í hópnum eru 12 háskólakylfingar sem eru í Bandaríkjunum meirihluta ársins en eru jafnframt þeir sem eru einna virkastir fyrir landsliðið hvað varðar þátttöku í alþjóðlegum mótum yfir sumartímann. Þá erum við með eldri kylfinga í hópnum og svo yngri kylfinga.“
„Allur hópurinn er ein heild og hugsunin er sú að við viljum styrkja tengslin milli eldri og reynslumeiri og þeirra yngri. Ég tel að þetta geti verið gott fyrir alla þar sem eldri kylfingarnir eru svolítið að æfa einir og sér og njóta góðs af hópumhverfinu og fá miku orku frá þeim yngri. Síðan er ómetanlegt fyrir þá yngri að fá tækifærið að æfa með bestu áhuga- og atvinnukylfingum landsins og læra af þeim.“
Yfir vetrartímann er áherslan hjá landsliðinu, að sögn Ólafs, á fræðslu og keppnislíkar æfingar.
„Tæknileg þjálfun fer fram hjá þjálfurum kylfinga hjá klúbbunum og við leggjum áherslu á þá þætti sem eðlilega fer minna fyrir í starfi klúbbanna. Þetta eru meðal annars þættir eins og leikskipulag, hugarþjálfun, líkamsþjálfun, að koma sér á framfæri, kynning á atvinnumennsku, mótaundirbúningur og markmiðasetning. Við leggjum upp úr því að hafa fjölbreyttar og skemmtilegar keppnir þar sem landsliðskylfingar geta borið sig saman og viðhaldið keppnisandanum þegar minna er um mót.“
Háskólakylfingarnir eru í stífu prógrammi hjá sínum skólum og sínum þjálfurum úti. Stuðningur við þá er því meira eftir þörfum hvers og eins að sögn Ólafs. „Mismunandi er eftir kylfingum hversu mikið þeir eru að spila og hvar álagið lendir. Sumir eru að spila í mjög mörgum mótum og aðrir í færri mótum. Það er mjög breytilegt eftir því á hvaða stað leikmenn eru. Við tökum svo betur utan um þennan hóp þegar hann er á landinu í vetrarfríi í desember og janúar. Þessi kylfingar koma síðan til landsins í maí og þá er áherslan á undirbúning fyrir alþjóðleg verkefni.“
Ólafur Björn segir að golfið falli alls ekki utan umræðunnar um aðstöðuleysi sérsambandanna þó þörfin sé með aðeins öðrum hætti en í mörgum öðrum samböndum.
„Það væri óskastaða að geta boðið okkar landsliðskylfingum upp á aðstöðu til æfinga. En að því sögðu þá hefur samstarfið verið frábært við klúbbana og þeir hafa verið afar almennilegir að koma okkur að og hjálpa til eins og þeir hafa getað. Við erum öll að róa í sömu átt í hreyfingunni og höfum sameiginlega hagsmuni. Ég vil þakka Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Golfklúbbnum Keili sérstaklega fyrir afnot að þeirra æfingaaðstöðu og frábærar móttökur um helgina“, segir Ólafur Björn Loftsson.
Atvinnukylfingar hafa komið að vinnu með hópnum en Ólafur segir það mjög mikilvægt.
„Þetta eru miklar fyrirmyndir. Þegar við vorum með fyrstu landsliðsæfingabúðirnar fengum við Ólafíu, Harald og Axel að kynna atvinnumensku í golfi og svara spurningum áhugasamra landsliðskylfinga. Ólafía talaði sem dæmi um að kylfingar eigi eftir að gera mistök og eiga eftir að reka sig á en þegar þeir fá leiðsögn og nokkra góða punkta þá gera þeir sömu mistökin sjaldnar fyrir vikið.“
„Markmiðið hjá okkar landsliðskylfingum er að fara í atvinnumennsku og það er gríðarlega jákvætt að geta nýtt reynslu þessa öfluga hóps atvinnukylfinga og miðla henni áfram. Það skiptir mjög miklu máli fyrir okkar landsliðskylfinga að fá þessa innsýn.“
Verkefni landsliðshópsins eru af ýmsum toga og í ár er leikið á sérstaklega spennandi völlum erlendis. Heimsmeistaramót áhugakylfinga verður haldið í ágúst og september nk. á Le Golf National í Frakklandi en leikið var um Ryder-bikarinn á vellinum árið 2018. Leikið er bæði í einstaklings- og liðakeppni á mótinu. Evrópumót liða í karlaflokki verður þá haldið á Royal St. George's vellinum í Englandi, þar sem Opna mótið var haldið í fyrra. Ólafur segir þessi verkefni mjög spennandi fyrir okkar fremstu áhugakylfinga.
„Sú breyting er framundan núna að HM verður haldið á oddatöluári svo við fáum HM tvö ári röð; í Frakklandi á þessu ári og í Dúbaí á næsta ári. Þá eru önnur stór verkefni sem við leggjum mikla áherslu á eins og European Young Masters, sem er stærsta mótið fyrir 16 ára og yngri.“
„Spirit International er annað verkefni, mjög sterkt mót, sem haldið er í Bandaríkjunum þau ár sem HM fer ekki fram. Við sendum fulltrúa á mótið í fyrsta sinn í mörg ár í nóvember sl. Lið okkar skipuðu þau; Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson en Tómas Freyr Aðalsteinsson var liðsstjóri. Okkar fólk stóð sig með prýði á mótinu.“

Í liðakeppni karla hafnaði Ísland í 11. sæti og í 14. sæti í liðakeppni kvenna. Í sameiginlegri liðakeppni hafnaði Ísland í 13. sæti.
Ólafur Björn er sjálfur aðalþjálfari landsliðshópsins en hann segir fjölmarga aðra koma að landsliðsstarfinu.
„Það er mjög gott samstarf í hreyfingunni og við njótum klárlega góðs af því að hafa frábæra þjálfara sem leggja mikinn metnað í vinnu með landsliðskylfingum.“
„Evrópumót liða fer fram í júlí á hverju ári og er okkar viðamesta verkefni ár hvert. Fjögur mót eru haldin samtímis í mismunandi löndum. Það fylgir þjálfari með öllum liðunum og svo erum við þar að auki með sjúkraþjálfara með hverju liði. Við teljum mikilvægt að hlúa sem best að okkar kylfingum og gefa þeim kost á að spila sem best.“
“Við eigum marga efnilega kylfinga og frábær árangur undanfarin ár gefur kylfingunum vaxandi trú á að ná árangri á stóra sviðinu. Það verður gaman að fylgjast með þessum efnilega hópi í framtíðinni og hvernig golfíþróttinni vex sífellt ásmegin á Íslandi.”
Ólafur vildi að lokum nýta tækifærið til að hrósa landsliðskylfingunum fyrir mikinn kraft og metnaðarfulla viðleitni á æfingahelgunum.
„Það er frábært að fylgjast með þeim leggja sig alla fram og halda góðri einbeitingu allan tímann“, segir Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsamband Íslands.