Helga Sverris tók ranga kylfu og fór holu í höggi
Helga Sverrisdóttir, hjúkrunarfræðingur og félagi í Nesklúbbnum, var gestur í hlaðvarpinu Seinni níu í síðustu viku. Helga fer yfir það af mikilli hreinskilni hvernig það er að byrja í golfi og þær áskoranir sem því fylgir.
Helga segir meðal annars frá þeirri þolraun sem það var að taka þátt í meistaramóti eftir að hafa nýlega hafið golfiðkun. Helga segir okkur einnig frá því þegar hún gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í golfferð á vegum Nesklúbbsins. Þar hjálpaði til að hún tók alls ekki rétta kylfu í höggið en boltinn steinlá í holunni engu að síður.
Stórskemmtilegur þáttur þar sem mannlegi þátturinn í golfinu er svo sannarlega í fyrirrúmi. Helga segir okkur einnig stórskemmtilega sögu úr boðsmóti á Hvaleyrarvelli þar sem eiginmaður hennar, Bjarni Ármannsson, kemur við sögu.