Helgi Dan og Þuríður klúbbmeistarar í Grindavík
Þuríður Halldórsdóttir og Helgi Dan Steinsson eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Grindavíkur en fjölmennasta meistaramóti í sögu GGG lauk nýlega. 124 kylfingar tóku þátt og keppt var í 10 flokkum.
Meistaraflokkur kvenna
1. sæti Þuríður Halldórsdóttir - 352 högg
2. sæti Svanhvít Helga Hammer - 358 högg
3. sæti Stefanía Sigríður Jónsdóttir - 385 högg
Meistaraflokkur karla
1. sæti Helgi Dan Steinsson - 283 högg
2. sæti Jónatan Hróbjartsson - 299 högg
3. sæti Þorlákur G Halldórsson - 307 högg
Unglingaflokkur
1. sæti Örvar Ingi Theódórsson - 334 högg
2. sæti Einar Þór Sævarsson - 353 högg
3. sæti Eiríkur Óli Sævarsson - 378 högg
Í karlaflokki 65 ára og eldri voru spilaðir 3 hringir og röðuðust úrslit þannig:
1. sæti Jósef Kristinn Ólafsson - 248 högg
2. sæti Bjarni Andrésson - 250 högg
3. sæti Jón Halldór Gíslason - 290 högg
Opin flokkur kvenna var æsispennandi alla dagana en allar eiga þær konur sem tóku þátt í mótinu sameiginlegt að vera mestu stuðpinnarnir, þær dönsuðu sig í gang fyrir hring og brostu sínu breiðasta þrátt fyrir að veðrið hafi ekki alltaf verið með þeim í liði.
1. sæti Þórdís Daníelsdóttir
2. sæti Hólmfríður Karlsdóttir
3. sæti Gréta Halldórsdóttir
Í opnum flokki karla voru aðeins 3 punktar sem skildu að efstu 3 sætin.
1. sæti Hlynur Hauksson
2. sæti Sævar Jónasson
3. sæti Grétar Valur Schmidt
3. flokkur karla
1. sæti Arnór Daði Halldórsson - 348 högg
2. sæti Theodór Ingi Þrastarson - 352 högg
3. sæti Kristinn Þorri Þrastarson - 363 högg
2. flokkur karla
1. sæti Pétur Ingi Bergvinsson - 342 högg
2. sæti Þórarinn Gunnlaugsson - 350 högg
3. sæti Bjarki Guðmundsson - 352 högg
Í 1. flokki kvenna var sigurvegarinn enginn nýliði þar sem að hún hefur tekið þátt í öllum meistaramótum frá stofnun klúbbsins.
1. sæti Hildur Guðmundsdóttir - 358 högg
2. sæti Petra Rós Ólafsdóttir - 375 högg
3. sæti Rannveig Jónína Guðmundsdóttir - 391 högg
Úrslit í 1. flokki karla voru nálægt því að setja lokahóf mótsins í uppnám þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á fimmtu holu í bráðabana.
1. sæti Ingvar Guðjónsson - 320 högg
2. sæti Sigurður Helgi Hallfreðsson - 320 högg
3. sæti Ástþór Arnar Ástþórsson - 321 högg
Á fjórða og síðasta degi mótsins var mæld nánd á 18. holu vallarins og voru sigurvegararnir leystir út með gjöfum frá klúbbnum.
Andrea Karen Jónsdóttir var sú kona sem var næst, 5.30
Hávarður Gunnarsson var sá karl sem næstur var holu, 1.20



