Íslenski fáninn á átjándu á Selsvelli á Flúðum
Íslenski fáninn hefur rokið upp í vinsældum eftir að ný fánalög tóku gildi. Golfklúbbur Öndverðarness nýtti sér það í vor með því að setja íslenska fánann á stöng á 18. flöt. Nú hefur Golfklúbbur Flúða gert hið sama á Selsvelli.
Í nýju fánalögunum segir að fáninn megi vera uppi allan sólarhringinn frá 15. maí til 15. ágúst.
Ef kylfingar vilja taka upp stöngina og leggja frá sér við pútt, þá er sérstakur haldari við hlið flatar til að leggja hana frá sér, því auðvitað má fáninn ekki snerta jörð.
Margir klúbbar skarta nú íslenska fánanum við klúbbhús og völl en þessi tilbreyting, að hafa hann á lokastöng vallar er skemmtileg og ekki ólíklegt að fleiri fylgi í kjölfarið.
Meðfylgjandi myndir eru frá Flúðum sem klúbburinn birti á Facebook síðu sinni.





