Fréttir

Aðalfundur NK: Ein breyting á stjórn
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 3. desember 2019 kl. 08:00

Aðalfundur NK: Ein breyting á stjórn

Aðalfundur Nesklúbbsins var haldinn fimmtudaginn 28. nóvember. Helstu tölur úr rekstri klúbbsins voru að rekstrartekjur voru rúmlega 104 milljónir króna og rekstrargjöld tæplega 96 milljónir. Eftir framkvæmdir og fjárfestingar var hagnaður á starfsemi ársins rúmlega ein milljón. Engar langtímaskuldir hvíla á klúbbnum og nam eigið fé í árslok rúmlega 73,5 milljónum.

Eftirfarandi kemur fram á heimasíðu klúbbsins:

„Á fundinum voru ákveðin félagsgjöld fyrir árið 2020. Stjórn klúbbsins lagði fram rekstraráætlun sem tók mið af um 4% hækkun á félagsgjöldum að meðaltali í samræmi við almennar verðlagshækkanir og hækkun á GSÍ félagsgjaldinu.  Á fundinum var borin upp breytingartillaga sem gerði ráð fyrir frekari hækkun til þess að standa straum af uppbyggingu á vellinum. Fundarstjóri bar tillöguna upp og var hún samþykkt með miklum meirihluta atkvæða. Félagsgjöld fyrir árið 2020 verða því eftirfarandi:

20 ára og eldri: 90.200 (97.200 með inneign í veitingasölunni)
15 ára og yngri: 41.800
16-19 ára: 62.700
67 ára og eldri: 75.900 (82.900 með inneign í veitingasölunni)“

Ein breyting varð á stjórn klúbbsins. Þuríður Halldórsdóttir gaf ekki kost á sér til endurkjörs og Þorsteinn Guðjónsson kom nýr inn í stjórn í staðinn.

Stjórn NK árið 2020:

Kristinn Ólafsson, formaður

Árni Vilhjálmsson
Áslaug Einarsdóttir
Guðrún Valdimarsdóttir
Jóhann Karl Þórisson
Stefán Örn Stefánsson
Þorsteinn Guðjónsson