Fréttir

Alls slógu 145 kylfingar draumhöggið á árinu 2013
Ólöf María Einarsdóttir. Mynd/Aðalsteinn Örnólfsson
Mánudagur 20. janúar 2014 kl. 10:04

Alls slógu 145 kylfingar draumhöggið á árinu 2013

Alls náðu 145 íslenskir kylfingar að slá draumahöggið á árinu 2013 og er það met.

Alls náðu 145 íslenskir kylfingar að slá draumahöggið á árinu 2013 og er það met. Fyrra metið var frá árinu 2010 þegar 143 náðu að slá draumahöggið. Árangurinn á síðasta ári er því áhugaverður því veðurfarið var með eindæmum lélegt á SV-horni landsins og mun færri golfhringir leiknir miðað við undanfarin ár.

Einherjaklúbburinn sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:

Árið 2013 var mörgum kylfingum farsælt þrátt fyrir lélegt golfsumar. Aldrei áður hafa eins margir, 145 kylfingar, náð draumahögginu. Fyrra metið var árið 2010 en þá voru 143 sem náðu draumahögginu.

Að uppfylltum nokkrum einföldum formsatriðum þá verða allir kylfingar sem fara holu í höggi sjálfkrafa meðlimir í Einherjaklúbbnum. Klúbburinn var stofnaður af tíu þáverandi afreksmönnum á þessu sviði árið 1967 og hefur síðan haldið skrá yfir alla þá sem hafa farið holu í höggi.

Án þess að gera lítið úr afreki flestra nýrra félaga í klúbbnum þá verður að teljast að afrek nokkurra nýliðanna hafa verið öðrum fremri.

Ólöf María Einarsdóttir 14 ára kylfingur í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík afrekaði að fara tvisvar holu í höggi s.l. sumar og það aðeins á fjórum vikum í júlí og ágúst. Fyrst á þriðju holu á Arnarholtsvelli og svo á fyrstu holu á Selsvelli.

Böðvar Bragi Pálsson aðeins 10 ára gamall úr GR, náði að fara holu í höggi í október s.l. á 17. holunni á Korpúlfsstaðarvelli sló hann boltann með ‚driver‘ á móti vindi sem rataði ofan í holuna. Aðeins 6 kylfingar hafa náð því afreki að fara holu í höggi undir 10 ára aldri.

Árið 1994 fór Ragnar Einarsson holu í höggi þá aðeins 6 ára og er yngsti íslenski kylfingurinn sem vitað er um að hafi farið holu í höggi.

Hinrik Lárusson meðlimur í GKG er fæddur árið 1932 og var því 81 árs þegar hann fór 9. holu í Mýrinni á einu höggi s.l. sumar. Aðeins er vitað um tvo eldri kylfinga sem hafa farið holu í höggi. Arnar T. Sigþórsson er þó elstur allra. Hann var 98 ára þegar hann fór holu í höggi árið 1985, en ekki er vitað hvar atvikið átti sér stað.

Þá bættist Hans Jakob Kristinsson í hóp 17 kylfinga sem hafa náð þeim merka árangri að fara holu í höggi fjórum sinnum eða oftar, en Björgvin Þorsteinsson trónir á toppnum með 8 skráð draumahögg.

Á síðunni einherjaklubburinn.net er að finna skrá yfir alla kylfinga sem hafa farið holu í höggi frá upphafi golfs á Íslandi. Einnig eru þar ýmsar upplýsingar um afrekið sem hvern einasta kylfing dreymir um en aðeins mjög fáir fá að njóta.