Andrea og Hulda í 4. og 5. sæti í Slóvakíu
Andrea Bergsdóttir og Hulda Gestsdóttir léku vel og enduðu í 4. og 5. sæti á LETAS móti í Slóvakíu sem lauk í dag. Þær færðust báðar upp stigalistann en sjö mót eru eftir á keppnistíðinni.
Andrea endaði 54 holurnar á fimm yfir pari, 76-72-73 og varð í 4. sæti. Höggi á eftir varð Hulda á sex yfir pari, 74-77-71 en skorið hennar á lokahringnum var það næst besta á þeim hring.
Heimakonan Michaela Vavrova sigraði á höggi yfir pari en aðstæður voru krefjandi á Tale Ski Golf vellinum.
Hulda styrkti stöðu sína á stigalistanum og er nú í 4. sæti með 892 stig en hún hefur leikið á 11 mótum keppnistíðarinnar. Sjö efstu í lok hennar fá þátttökurétt á LET Evrópumótaröðinni 2027.
Ragnhildur Kristinsdóttir sem var ekki meðal keppenda í þessu móti er í 13. sæti með 681.65 stig.
Andrea Bergsdóttir færðist upp í 19. sæti með 526,61 stig.

Hulda slær inn á flöt á mótinu í Slóvakíu.



