Brautarholt og Vestmannaeyjar vekja athygli í útlöndum - eru á topp 100 lista þekkts golftímarits
Tveir íslenskir golfvellir eru á topp 100 X-Factor Courses heimslista Today’s Golfer árið 2026. Golfklúbbur Brautarholts er í 16. sæti en Golfklúbbur Vestmannaeyja lenti í 23 sæti. Golfklúbbur Brautarholts er einnig á almenna topp 100 lista yfir bestu golfvelli í Evrópu hjá sama aðila sem var birtur á síðasta ári, segir í frétt frá Brautarholti.
Today's Golfer er mest lesna golftímarit Bretlands og heldur úti alþjóðlega virtum listum yfir bestu golfvelli heims að hverju sinni. Tímaritið gefur út nokkra lista, en sá sem íslensku golfvellirnir tveir höfnuðu á er Top 100 X-Factor World listinn, sem tekur saman bestu velli í öllum heiminum sem bjóða kylfingum upp á einstaka upplifun og hafa því hinn svokallaða X-Factor.
Today’s Golfer byggir lista sína á mati sérstakra álitsgjafa sem tímaritið hefur á sínum snærum, sem ferðast um allan heim og dæma golfvelli.
Eins og mörgum er kunnugt hefur Ísland verið að ryðja sér til rúms í alþjóðlega golfheiminum undanfarin ár, og verður stöðugt eftirsóttari áfangastaður fyrir erlenda kylfinga. Alþjóðlegar viðurkenningar á íslenskum golfvöllum eins og þessi eiga mikinn þátt í vaxandi orðspori Íslands í golfi á alþjóðavísu. Það er mikil ánægja fyrir íslenska golfsamfélagið að þessir íslensku golfvellir séu settir jafnfætis heimsfrægum gæðavöllum á borð við St Andrews, Bandon Dunes og Pebble Beach.
Um Golfklúbb Vestmannaeyja, sem hafnaði í 23. sæti, hafði Today’s Golfer þetta að segja:
“There is no other landscape like Westman Islands in this list. The course sits in a crater on the edge of the sea, creating an enormous semi-circle amphitheatre. Truly astonishing.”
Um Golfklúbb Brautarholts, sem hreppti 16. Sætið, hafði Today’s Golfer þetta að segja:
“Brautarholt has been extended to 18 holes, but all but one panellist judged it on the 12 they’d seen. So its lava rocklined holes on the edge of the water might merit an even higher slot.”
Golfvöllur Brautarholts stækkaði úr 12 í 18 holur sumarið 2025. Miðað við þessi ummæli er ekki alls ólíklegt að íslenski völlurinn haldi áfram að hækka sig á alþjóðlegum listum þegar fleiri álitsgjafar fá tækifæri til að spila allar 18 holur Brautarholtsvallar.

Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum hefur vakið athygli margra erlendra kylfinga og blaðamanna.



