Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Óliver Elí lagði Evrópumeistarann og leikur til úrslita
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 14. ágúst 2026 kl. 16:42

Óliver Elí lagði Evrópumeistarann og leikur til úrslita

Keiliskylfingurinn Óliver Elí Björnsson er kominn í úrslitaleikinn á The R&A Boys’ Amateur Championship, stærsta unglingamóti heims, eftir sigur á Frakkanum Tao Pemerika, ríkjandi Evrópumeistara unglinga. Óliver mætir Ludwig Libera frá Svíþjóð í 36 holu úrslitaleik á Glasgow Gailes Links vellinum í Skotlandi á morgun.

Leikurinn var spennandi en Keiliskappinn vann tvær fyrstu brautirnar á pari. Hann lék stöðugra golf en Evrópumeistarinn og kláraði 18 holurnar á pari, fékk einn skolla og einn fugl en Pemerika fékk fimm skolla og fjóra fugla. Hann náði einu eini forystu, á 14. holu en tapaði henni til Íslendingsins á 16. braut. Þeir léku tvær síðustu holurnar á pari og enduðu því jafnir eftir 18 holur. Því var haldið í bráðana og fengu þeir báðir par á fyrstu þrjár holurnar. Óliver Elí fékk síðan fugl á 13. holu og tryggði sér magnaðan sigur.

Andstæðingur Ólivers í úrslitunum vann Ítalann Carlo Roman 3/2 og lék sextán holurnar á höggi yfir pari.

Lokastaðan.