Anna í 10.-12. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á The Duke of York
Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili og Aron Snær Júlíusson úr GKG hafa lokið leik í dag á fyrsta keppnisdegi á The Duke of York Young Champions Trophy. Keppnin fer fram á Royal St. George´s vellinum á Englandi. Anna Sólveig er í 10.-12. sæti eftir að hafa leikið á 77 höggum en Aron er í 13.-18. sæti en hann lék á 78 höggum í dag.
Staðan á mótinu:
Mótið er gríðarlega sterkt og eru 56 keppendur frá 32 löndum sem taka þátt en keppendur eru allir 18 ára og yngri.
Guido Migliozzi frá Ítalíu er efstur á 73 höggum en alls verða leiknar 54 holur eða þrír hringir á mótinu.
Það er Andrew Bretaprins, sem er jafnframt hertoginn af Jórvík, sem er gestgjafi mótsins og afhendir hann verðlaunin í mótslok. Ísland hefur titil að verja á þessu móti sem Ragnar Már Garðarsson liðsfélagi Arons úr GKG stóð uppi sem sigurvegari í fyrra þegar mótið fór fram á Royal Troon vellinum.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR sigraði á þessu móti árið 2010 þegar mótið fór fram á Royal St. George´s vellinum.
Royal St. George´s völlurinn er einn af þekktustu golfvöllum Bretlands en Opna breska meistaramótið hefur farið 14 sinnum fram á þessum velli. Darren Clark frá Norður-Írlandi fagnaði þar sínum fyrsta og eina titli á risamóti árið 2011, Bandaríkjamaðurinn Ben Curtis gerði slíkt hið sama með óvæntum sigri árið 2003.