Aron og Perla sigruðu í Leirunni
Aron Snær Júlíusson úr GKG og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR sigruðu á Reykjanesmóti GS og GSG en þetta var fyrsta stigamót sumarsins hjá okkar bestu kylfingum.
Leikið var á Hólmsvelli og svo átti að leika einn hring í Sandgerði en aðstæður á laugardeginum voru þannig að leik var aflýst vegna veðuraðstæðna. Því voru einungis leiknir tveir hringir og báðir á Hólmsvelli.
Aron Snær hefur alltaf kunnað vel við sig í Leirunni en hann varð Íslandsmeistari þar í annað sinn 2024. Aron Snær var átta högg frá efsta manni eftir fyrsta hringinn í Leirunni á föstudag. Hann mætti síðan með besta skor sunnudagsins þegar hann lék á 65 höggum, sex undir pari. Keilismaðurinn Axel Bóasson var fyrri hringinn á höggi undir pari og lék annan hringinn á tveimur undir, 69 höggum. Þeir fóru í bráðabana um sigurinn og þar hafði Aron betur á 16. holunni þar sem hann fékk par.
Tómas Eiríksson Hjaltesteð varð þriðji á -2 og Aron Emil endaði fjórði á -1.
Perla Sól og Suðurnesjakonan Fjóla Margrét Viðarsdóttir voru í forystu eftir fyrri keppnisdaginn á +4. Þær voru enn jafnar þegar níu holur voru eftir en þá skildu leiðir og Perla Sól lék þær á höggi undir pari en Fjóla á fjórum yfir og endaði önnur. Eva Kristinsdóttir úr GM varð í þriðja sæti á tíu yfir pari.




