Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ársskýrsla GSÍ: Mesta fjölgunin hjá GBR
Golfklúbbur Brautarholts er staðsettur rétt fyrir utan Kjalarnes.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 27. nóvember 2019 kl. 08:00

Ársskýrsla GSÍ: Mesta fjölgunin hjá GBR

Í nokkur ár hefur Golfsamband Íslands tekið saman tölfræði og lykiltölur fyrir klúbba, samstarfsaðila og aðra hagsmunaaðila. Í kjölfar golfþings sambandsins sem fór fram um síðustu helgi birtu þeir ýmis gögn sem Kylfingur mun deila með lesendum sínum á næstu dögum.

Meðal þess sem kemur fram er fjöldi kylfinga í öllum klúbbum landsins og breyting á milli ára. Þar er til að mynda hægt að sjá að mesta fjölgun klúbbfélaga milli ára í prósentum talið er hjá Golfklúbbi Brautarholts en um var að ræða 85% fjölgun milli áranna 2018 og 2019. Klúbbfélagar GBR eru nú orðnir 131 talsins.

Mesta fækkunin milli ára átti sér stað hjá Golfklúbbnum Tudda eða um 33%. Athygli vekur að alls fækkaði klúbbfélögum í GKG um 140 á árinu sem er um 7% fækkun frá árinu 2018.

Fjölmennasti klúbbur landsins er sem fyrr Golfklúbbur Reykjavíkur en alls bættust við 168 kylfingar í klúbbinn milli ára. Við þessa aukningu eru nú 3.232 kylfingar í GR rúmlega 18% af þeim 17.846 kylfingum sem voru í golfklúbbi í sumar.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölda klúbbfélaga í öllum klúbbum landsins:

Klúbbur 2019 2018 Breyting %
Golfklúbbur Brautarholts 131 71 60 85%
Golfklúbburinn Dalbúi 61 43 18 42%
Golfklúbburinn Jökull 74 54 20 37%
Golfklúbbur Siglufjarðar 55 41 14 34%
Golfklúbburinn Ós 36 30 6 20%
Golfklúbburinn Gljúfri 12 10 2 20%
Golfklúbbur Þorlákshafnar 323 270 53 20%
Golfklúbburinn Oddur 1.464 1.226 238 19%
Golfklúbburinn Lundur 31 26 5 19%
Golfklúbburinn Glanni 49 42 7 17%
Golfklúbbur Hornafjarðar 100 86 14 16%
Golfklúbbur Staðarsveitar 15 13 2 15%
Golfklúbbur Borgarness 184 162 22 14%
Golfklúbbur Suðurnesja 574 506 68 13%
Golfklúbbur Bíldudals 36 32 4 13%
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar 172 153 19 12%
Golfklúbbur Patreksfjarðar 38 34 4 12%
Golfklúbbur Selfoss 443 399 44 11%
Golfklúbbur Sauðárkróks 167 151 16 11%
Golfklúbburinn Geysir 43 39 4 10%
Golfklúbbur Húsavíkur 125 114 11 10%
Golfklúbburinn Úthlíð 164 151 13 9%
Golfklúbbur Mosfellsbæjar 1.224 1.133 91 8%
Golfklúbbur Seyðisfjarðar 68 63 5 8%
Golfklúbburinn Vík 35 33 2 6%
Golfklúbbur Ásatúns 210 199 11 6%
Golfklúbbur Reykjavíkur 3.232 3.064 168 5%
Golfklúbburinn Þverá Hellishólum 59 56 3 5%
Golfklúbbur Norðfjarðar 68 66 2 3%
Golfklúbbur Ísafjarðar 138 134 4 3%
Golfklúbbur Vopnafjarðar 35 34 1 3%
Golfklúbbur Fjallabyggðar 110 107 3 3%
Golfklúbbur Hveragerðis 232 228 4 2%
Golfklúbbur Hellu 98 97 1 1%
Golfklúbburinn Keilir 1.297 1.285 12 1%
Golfklúbbur Akureyrar 716 712 4 1%
Golfklúbburinn Flúðir 187 186 1 1%
Golfklúbbur Álftaness 247 246 1 0%
Golfklúbbur Öndverðarness 368 367 1 0%
Nesklúbburinn 737 736 1 0%
Golfklúbburinn Leynir 471 471 0 0%
Golfklúbbur Byggðarholts 40 40 0 0%
Golfklúbbur Skagastrandar 28 28 0 0%
Golfklúbbur Hólmavíkur 25 25 0 0%
Golfklúbburinn Húsafelli 16 16 0 0%
Golfklúbburinn Skrifla 4 4 0 0%
Golfklúbburinn Mostri 86 87 -1 -1%
Golfklúbbur Fjarðarbyggðar 86 88 -2 -2%
Golfklúbbur Vestmannaeyja 406 420 -14 -3%
Golfklúbburinn Setberg 393 407 -14 -3%
Golfklúbbur Grindavíkur 222 234 -12 -5%
Golfklúbbur Sandgerðis 142 150 -8 -5%
Golfklúbburinn Kiðjaberg 206 218 -12 -6%
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 1.950 2.090 -140 -7%
Golfklúbbur Bolungarvíkur 55 59 -4 -7%
Golfklúbburinn Vestarr 134 146 -12 -8%
Golfklúbbur Mývatnssveitar 11 13 -2 -15%
Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs 80 95 -15 -16%
Golfklúbburinn Hvammur Grenivík 24 30 -6 -20%
Golfklúbburinn Hamar 85 109 -24 -22%
Golfklúbburinn Tuddi 24 36 -12 -33%
Samtals 17.846 17.165 681 4%