Fréttir

Bjarni Þór vann einvígið á Nesinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 3. ágúst 2022 kl. 11:26

Bjarni Þór vann einvígið á Nesinu

Heimamaðurinn Bjarni Þór Lúðvíksson, 18 ára klúbbmeistari Nesklúbbsins, stóð uppi sem sigurvegari á hinu árlega góðgerðamóti Nesklúbbsins, Einvíginu á Nesinu sem fram fór á frídegi verslunarmanna 1. ágúst. Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, og Bjarni Þór voru tveir eftir í lokin og hafði Bjarni betur eftir spennandi keppni á lokaholunni.

Venju samkvæmt var nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og í ár var leikið í þágu stuðningsfélagsins Einstök börn. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu. Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Magnús Örn Guðmundsson frá STEFNI, afhentu Guðrúnu Helgu Harðadóttur, framkvæmdarstjóra Einstakra barna ávísun að upphæð kr. 1.000.000 í mótslok.

Fyrirkomulagið í Einvíginu var þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu voru leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það var farið í hið hefðbundna „shoot-out“ fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.

Úrslit í Einvíginu 2022:

  1. sæti: Bjarni Þór Lúðvíksson
  2. sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson
  3. sæti: Aron Snær Júlíusson
  4. sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir
  5. sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
  6. sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir
  7. sæti: Hlynur Bergsson
  8. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson
  9. sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
  10. 10. sæti: Magnús Lárusson