Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Einherjar fá tækifæri til að vinna Benz - tvær konur með sitt þriðja draumahögg
Anna Snædís fagnar draumahöggi á 17. holu í Grafarholti.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 4. september 2026 kl. 11:28

Einherjar fá tækifæri til að vinna Benz - tvær konur með sitt þriðja draumahögg

Nýir einherjar á Íslandi fá tækifæri til að vinna splunkunýja Benz bifreið sem er í verðlaun fyrir þann sem fer holu í höggi á Nesvellinum á morgun í árlegu móti Einherjaklúbbsins.

Einherjum fjölgar stöðugt og kylfingar hafa verið heitir í sumar.

Tvær konur fóru holu í höggi í þriðja sinn í lok ágúst.

Karen Lúðvíksdóttir úr GR fór holu í höggi á hinni glæsilegu 2. braut Silfurnesvallar á Höfn í Hornafirði 28. ágúst. Karen átti fyrir draumahögg á 13. holu á Korpunni 2024 og 3. braut sama vallar í sumar.

Anna Snædís fór holu í höggi á 17. braut á Grafarholtsvelli 31. ágúst. Þetta er þriðja draumahögg Önnu en hún fór holu í höggi á 10. braut á Hvaleyrarvelli 2022 og á 4. braut sama vallar 2023.

17. braut í Grafarholti var nýlega breytt og er algerlega ný hola. Sú gamla var ein erfiðasta par 3 braut landsins í hálfa öld og þar fóru ekki margir holu í höggi, en samkvæmt heimasíðu Einherjaklúbbsins var þetta draumahögg Önnu það nítjánda í sögu 17. holu vallarins frá árinu 1984 og það sjötta á nýju brautinni.