Fréttir

Bjartsýni ríkir hjá grindvískum golfurum fyrir sumarið
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 17. apríl 2024 kl. 14:40

Bjartsýni ríkir hjá grindvískum golfurum fyrir sumarið

„Þó svo að aðstæður væru eðliegar værum við ekki að opna Húsatóftavöll á sumardaginn fyrsta, tíðarfarið býður ekki upp á það. Vonandi getum við opnað 1. maí,“ segir Helgi Dan Steinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur.

Golfklúbbur Grindavíkur hélt ársfund á sunnudaginn og er gott hljóð í grindvískum golfurum að sögn Helga.

„Ég er á fullu að undirbúa sumarið, er að skrúfa saman háþrýstidælu í þessum töluðu orðum og svo bið ég bara um rigningu, við þurfum að fá hana svo áburðurinn skili sínu en ég er nýbúinn að bera á grín og teiga. Þó svo að allt væri með felldu í Grindavík og það myndi ekki þurfa að skanna golfvöllinn, þá værum við hvort sem er ekki að opna hann á sumardaginn fyrsta eins og við höfum gert undanfarin ár. 

Við héldum aðalfund okkar á sunnudaginn og kom aldrei neitt annað til greina en halda það í golfskálanum okkar á Húsatóftavelli. Mætingin var góð og var gott hljóð í grindvískum golfurum, það eru allir sammála um að þetta verði frábært golfsumar hjá okkur.“

Í gær hóf verkfræðistofan EFLA jarðvegsskönnun á Húsatóftavelli og fer verkið vel af stað.

„Það eru allir sammála um að það þurfi að framkvæma þessa jarðvegsskönnun á Húsatóftarvelli, við myndum aldrei hleypa öðruvísi inn á hann. Ég persónulega er sannfærður um að það er í lagi með völlinn en mér myndi ekki líða vel með að hleypa inn á hann fyrr en fagaðilar eru búnir að ganga úr skugga um að allt sé í lagi. Það er búið að fljúga með dróna yfir völlinn og á bara eftir að vinna úr þeim gögnum. Ég er búinn að labba völlinn allan þvert og endalangt og hef ekkert séð athugavert, einu skemmdirnar eru þær sem urðu 10. nóvember við fremri teiginn á þrettándu holu, á nýja æfingasvæðinu og svo eru smá sprungur í bílastæðinu. Þetta eru minniháttar skemmdir en þó munum við þurfa að gera nýjan fremri teig á þrettándu holu. Vonandi verður það svæði ekki lagað, heldur girt af svo gestir okkar geti skoðað hvað gekk á. Skemmdirnar á æfingasvæðinu skipta ekki svo miklu máli því það var ekki orðið tilbúið og ég myndi treysta mér til að leggja bílnum þar sem skemmdin er á bílastæðinu. Þetta verður samt auðvitað lagað, ég er bara að benda á að ástandið hjá okkur er miklu betra en margir halda. Ég hef margoft verið spurður að því hvort Húsatóftarvöllur sé ónýtur, því fer víðsfjarri! Síðan völlurin opnaði árið 1981 höfum við leikið golf á milli tveggja sprunga og þær hafa ekkert stækkað síðan 10. nóvember. Brúin á milli Ameríku- og Evrasíuflekans hefur ekkert aflagast t.d. Ástandið á vellinum okkar er bara mjög gott fyrir utan að veðurguðirnir hafa ekki verið okkur hliðhollir frekar en öðrum golfvöllum. Spáin er þannig að það eigi að rigna og mig grunar að svo fari að hlýna og ef allt gengur að óskum munum við opna völlinn með pompi og prakt 1. maí í síðasta lagi,“ segir Helgi.

Traffík á Húsatóftavelli í sumar?

Helgi á alveg eins von á því að mikil traffík verði á golfvellinum í sumar.

„Tja, þegar stórt er spurt. Umferðin á Húsatóftavelli gæti orðið miklu meiri en undanfarin ár en þess ber að geta að mun fleiri útlendingar spiluðu völlinn á síðasta ári en áður. Oftast var það fólk sem kom við og ákvað að spila, þ.e.a.s. þau voru ekki búin að panta rástíma áður en þau komu. Hins vegar er ennþá lokað fyrir aðra en Grindvíkinga inn til Grindavíkur og þó svo að Húsatóftavöllur sé talsvert frá Grindavík, eru ennþá lokunarpóstar og það er ekki beint aðdráttarafl á völlinn. Þó svo að hægt sé að keyra Nesveginn þá lengir það leiðina það mikið svo ég þori varla að spá fyrir um hvernig traffíkin verður. Ef þessir lokunarpóstar allir hverfa og opnað verður til Grindavíkur á ég alveg eins von á því að mikil ásókn verði á völlinn okkar. Íslendingar eru forvitnir og ég er nokkuð viss um að útlendingunum mun ekki fækka á næstu árum svo hver veit, kannski verður þetta alger sprengja í sumar og það verður svokallað lúxusvandamál að glíma við ef til þess kemur.“

Grindvískir golfarar þurfa samt ekki að örvænta ef svo ólíklega vildi til að ekki verði hægt að leika Húsatóftavöll.

„Nokkrir golfklúbbar hafa heldur betur opnað faðm sinn fyrir okkur Grindvíkingum og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Golfklúbbur Suðurnesja, Golfklúbbur Sandgerðis og Golfklúbbur Vestmannaeyja, bjóða meðlimum GG að spila frítt hjá sér í sumar og aðrir klúbbar bjóða góð kjör, einstaklega fallega gert hjá þessum klúbbum og fyrir það munum við alltaf verða þakklát fyrir. Vonandi mun samt ekki koma til þess, vonandi munu meðlimir GG einfaldlega geta spilað sinn Húsatóftarvöll en það er gott að vita af hinum valkostunum líka. Við Grindvíkingar þekkjum ekkert annað en horfa björtum augum til framtíðarinnar, við getum ekki beðið eftir að golfsumarið hefjist,“ sagði Helgi Dan að lokum.

Ársfundur GG var haldinn í golfskálanum á Húsatóftarvelli á sunnudaginn.

Búið er að fjúga með dróna yfir Húsatófarvöll...

... og er beðið eftir niðurstöðum.