Dagbjartur og Hlynur í lokamótinu í Danmörku
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson eru meðal tuttugu efstu eftir tvo daga af þremur á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti tímabilsins á Nordic Golf mótaröðinni. Leikið er á Aalborg Golfklub í Álaborg í Danmörku.
Dagbjartur lék fyrsta hringinn á þremur yfir en bætti um betur í öðrum hring sem hann lék á fimm undir pari, 66 höggum. Dabbi er jafn í 8. sæti á tveimur undir í heildina.
Hlynur lék fyrri hringinn á höggi undir pari en annan daginn á tveimur höggum yfir pari og er á +1.
Fimm efstu kylfingar stigalistans í lok tímabilsins öðlast keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni á næsta ári. Dagbjartur er í 23. sæti stigalistans og Hlynur í 29. sæti og þeir eiga þeir hvorugur möguleik á að enda í efstu fimm.
Dagbjartur á þó enn möguleika í gegnum úrtökumótin en hann vann sér þátttökurétt á 2. stigið sem fram fer 29. okt. til 1. nóv. á Spáni. Auk hans verða þar bræðurnir Sigurður Arnar og Ragnar Garðarssyni.



