Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Skotinn tryggði sér farseðilinn til St.Andrews og Augusta
Grant Forrest tryggði sér þátttökurétt á OPNA mótinu og Masters með sigrinum. Mynd/Getty.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 12. október 2026 kl. 11:08

Skotinn tryggði sér farseðilinn til St.Andrews og Augusta

Skotinn Grant Forrest tryggði sér sigur á Opna spænska meistaramótinu sem fram fór á á Real Club de Campo Villa de Madrid um helgina. Forrest og Frakkinn Victor Perez voru jafnir á 18. teig ásamt Spánverjanum Eugenio Chacarra og höfðu báðir tækifæri á síðustu holunni að tryggja sér sigur en Skotinn fékk fuglinn sem þurfti og tryggði sér titilinn í fyrsta sinn.

Þetta var þriðji sigur Skotans á DP mótaröðinni en með sigrinum í Madrid vann hann sér þátttökurétt á Opna mótinu (The OPEN) og á Masters en þar hefur kappinn aldrei stigið fæti og sagðist spenntur fyrir því að fara til Augusta.

Lokastaðan.